KR áfram á toppnum eftir endurkomusigur og Selfoss vann Suðurlandsslaginn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 3. nóvember 2023 21:57 Veigar Áki Hlynsson skroaði 16 stig fyrir KR í kvöld. Vísir/Bára Dröfn KR er enn á toppi 1. deildar karla í körfubolta eftir nauman eins stigs sigur gegn Þrótti Vogum á heimavelli í kvöld, 99-98. Á sama tíma vann Selfoss sinn annan sigur á tímabilinu er liðið tók á móti Hrunamönnum í Suðurlandsslag. KR-ingar þurftu heldur betur að hafa fyrir hlutunum er liðið tók á móti Þrótti Vogum í kvöld. Heimamenn í gamla stórveldinu voru átta stigum undir að loknum fyrsta leikhluta og staðan í hálfleik var 46-53, gestunum í vil. Þróttarar unnu einnig þriðja leikhluta og leiddu því með níu stigum þegar komið var að lokaleikhlutanum. Þar skelltu KR-ingar hins vegar í lás og skoruðu 26 stig gegn 16 stigum gestanna og unnu að lokum nauman eins stigs sigur, 99-98. KR-ingar eru því enn á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir fimm umferðir, en Þróttur situr í fjórða sæti með sex stig. Þá vann Selfoss sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið tók á móti Hrunamönnum í Suðurlandsslag. Gestirnir frá Flúðum leiddu með þremur stigum í hálfleik og voru fjórum stigum yfir þegar þrjár og hálf mínúta var til leiksloka, staðan 89-93. Heimamenn skorðu þá fjögur stig í röð og jöfnuðu metin áður en Svavar Ingi Stefánsson, sem nýverið dustaði rykið af skónum sem höfðu verið lagðir upp í hillu, setti niður þrist og fór langleiðina með að tryggja Selfyssingum sigurinn. Selfyssingar héldu að lokum út og unnu góðan tveggja stiga sigur, 98-96, þeirra annar sigur á tímabilinu. Öll úrslit kvöldsins Selfoss 98-96 Hrunamenn ÍR 94-83 Þór Ak. KR 99-98 Þróttur V. ÍA 80-82 Fjölnir Skallagrímur 65-77 Sindri Körfubolti Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira
KR-ingar þurftu heldur betur að hafa fyrir hlutunum er liðið tók á móti Þrótti Vogum í kvöld. Heimamenn í gamla stórveldinu voru átta stigum undir að loknum fyrsta leikhluta og staðan í hálfleik var 46-53, gestunum í vil. Þróttarar unnu einnig þriðja leikhluta og leiddu því með níu stigum þegar komið var að lokaleikhlutanum. Þar skelltu KR-ingar hins vegar í lás og skoruðu 26 stig gegn 16 stigum gestanna og unnu að lokum nauman eins stigs sigur, 99-98. KR-ingar eru því enn á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir fimm umferðir, en Þróttur situr í fjórða sæti með sex stig. Þá vann Selfoss sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið tók á móti Hrunamönnum í Suðurlandsslag. Gestirnir frá Flúðum leiddu með þremur stigum í hálfleik og voru fjórum stigum yfir þegar þrjár og hálf mínúta var til leiksloka, staðan 89-93. Heimamenn skorðu þá fjögur stig í röð og jöfnuðu metin áður en Svavar Ingi Stefánsson, sem nýverið dustaði rykið af skónum sem höfðu verið lagðir upp í hillu, setti niður þrist og fór langleiðina með að tryggja Selfyssingum sigurinn. Selfyssingar héldu að lokum út og unnu góðan tveggja stiga sigur, 98-96, þeirra annar sigur á tímabilinu. Öll úrslit kvöldsins Selfoss 98-96 Hrunamenn ÍR 94-83 Þór Ak. KR 99-98 Þróttur V. ÍA 80-82 Fjölnir Skallagrímur 65-77 Sindri
Selfoss 98-96 Hrunamenn ÍR 94-83 Þór Ak. KR 99-98 Þróttur V. ÍA 80-82 Fjölnir Skallagrímur 65-77 Sindri
Körfubolti Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira