Diaz ákveði sjálfur hvort hann geti spilað eftir að föður hans var rænt Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 3. nóvember 2023 23:30 Jürgen Klopp ætlar ekki að neyða Luis Diaz til að spila á sunnudaginn. Matthias Hangst/Getty Images Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að kólumbíski kantmaðurinn Luis Diaz fái sjálfur að ákveða hvort hann treysti sér til að spila í ensku úrvalsdeildinni um helgina eftir að föður hans var rænt í heimalandi þeirra.
Um síðustu helgi bárust fréttir af því að foreldrum Luis Diaz hafði verið rænt í heimalandi sínu, Kólumbíu. Stuttu síðar var greint frá því að móður hans hafði verið sleppt, en faðir hans er enn í haldi mannræningjanna. Í dag var þó greint frá því að skæruliðasamtökin sem rændu foreldrum Diaz ætli sér að sleppa föður leikmannsins sem fyrst. Eins og gefur að skilja hefur atburðarrásin tekið á fyrir leikmanninn og á blaðamannafundi fyrir leiki helgarinnar í dag sagði Jürgen Klopp að Diaz verði að fá að ákveða það sjálfur hvort hann treysti sér að spila þegar Liverpool heimsækir Luton á sunnudaginn. „Við munum bara bíða og sjá hvernig hann verður og hvernig honum líður,“ sagði Klopp um Diaz á blaðamannafundi dagsins. „Við munum ekki neyða hann til að spila. Það er ekki í okkar höndum,“ bætti Þjóðverjinn við. „Ef honum líður vel þá mun hann æfa með okkur. Þegar hann er með strákunum þá er hann nokkuð góður, en maður sér það á honum að hann er ekki búinn að sofa mikið. Hann æfði með okkur og miðvikudaginn og aftur í gær.“
Enski boltinn Kólumbía Mest lesið Ljótar senur á HM í handbolta í kvöld: Hræktu á Staffan Olsson Handbolti „Þetta var allsherjar klúður þarna“ Handbolti FIFA setur forsetann í bann fyrir að kalla konu feita Fótbolti „Þurfum að taka Dani til fyrirmyndar“ Handbolti Haaland sagður fá yfir tólf milljónir í laun á dag næsta áratuginn Enski boltinn Samingur Haaland slæmar fréttir fyrir Alan Shearer Enski boltinn Yfir hundrað gallaðir verðlaunapeningar frá ÓL í París Sport Aron skráður inn á HM og löglegur á morgun Handbolti Lofar því að fá sér kengúru húðflúr Sport Elísabet sögð vera að taka við belgíska landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Haaland sagður fá yfir tólf milljónir í laun á dag næsta áratuginn Samingur Haaland slæmar fréttir fyrir Alan Shearer Denis Law látinn Fer Garnacho frá Manchester United? Chelsea hefur áhuga City búið að finna sinn Salah? Hetja United: „Ein besta vika lífs míns“ Haaland skrifaði undir níu og hálfs árs samning við City Diallo bjargaði málunum fyrir United á Old Trafford Foden: Við erum ekki heimskir, titillinn er farinn Arsenal kom til baka og vann slaginn um Norður-London Isak áfram í stuði og Moyes tapaði fyrsta leik Amorim: Southampton mun kenna mér meira en Liverpool og Arsenal Klopp: Ég held partý ef Man City missir titlana Slot segir að Forest sé í titilbaráttu Glazer-systkinin dvöldu á Vopnafirði í sumar Arftakar Linekers í Match of the Day kynntir Fenginn aftur til Chelsea og spilar ekki í kvöld Littler skildi ekkert hvað Sir Alex sagði Malen mættur til Villa Jafnt í toppslagnum í Skírisskógi Ótrúleg endurkoma heimamanna James bjargaði heimaliðinu Fyrrum fyrirliði og þjálfari Man City látinn Segja að Zubimendi fari til Arsenal í sumar Arteta um ógeðslegu skilaboðin: „Verður að draga línu í sandinn“ Engin stig tekin af ensku liðunum Tímabilinu líklega lokið hjá Jesus Guardiola skilinn eftir þrjátíu ára samband Fyrirliði Man United sendi Jóa Berg og fjölskyldu fallega gjöf Á morgun opinberar enska úrvalsdeildin hvaða liðum verður refsað Sjá meira