Lansbury var í sturtu eftir æfingu, eins og vani er, árið 2016. Það var þá sem hann fann fyrir kúlu á „stærð við baun.“ Hann beið hins vegar með að takast á við vandann og segir að vikur hafi orðið að mánuðum en „baunin“ hafi enn verið á sínum stað.
Hann segir þetta hafa verið mjög erfitt andlega þar sem hann hafi ekki viljað segja neinum frá þessu hjá Forest. Hann var 25 ára gamall og fyrirliði liðsins. Það var ekki fyrr en hann var á leið í sumarfrí sem hann fór á spítalann og vildi láta skoða þetta betur, biðtíminn var hins vegar nokkrar vikur.
"I had it and didn't tell anyone."
— Mirror Football (@MirrorFootball) November 2, 2023
Ex-Arsenal youngster Henri Lansbury has revealed he overcame testicular cancer while playing for Nottingham Forest back in 2016https://t.co/xmPmIPHmAJ pic.twitter.com/me6RKMwMDr
Hann var á leið í frí og ákvað því loks að tala við læknateymið hjá Forest. Hann er mjög ánægður með að hafa látið verða af því.
„Þeir komu mér í samband við aðila sem gat skoðað mig strax og ég fór í myndatöku,“ sagði Lansbury. Nær samstundis fékk hann staðfestingu á því að hann væri með eistnakrabbamein.
„Það var rétt nægur tími til að segja nánustu vinum fjölskyldu,“ en hann fór undir hnífinn sama dag.
„Þetta gerðist mjög hratt. Ég man eftir að vera svæfður því ég var að reyna tala við lækninn en steinrotaðist svo. Svo vaknaði ég með Kieran Gibbs (fyrrum samherja og góðan vin) við hliðina á mér hlæjandi að því að ég væri bara með eitt eista.“
Lansbury getur hlegið með Gibbs í dag. Aðgerðin heppnaðist fullkomlega og hann eignaðist tvö börn til viðbótar með eiginkonu sinni. Þá spilaði Lansbury sjö ár til viðbótar með Forest, Aston Villa, Bristol City og loks Luton Town.
Recently-retired footballer Henri Lansbury has revealed that he overcame testicular cancer whilst playing for Nottingham Forest in 2016 pic.twitter.com/n63xbm06H3
— Sky Sports News (@SkySportsNews) November 2, 2023
Hann nefnir þetta nú því hann vill vekja athygli á þessu. Miðjumaðurinn fyrrverandi vill hjálpa karlmönnum að leita sér aðstoðar lendi þeir í því sama og hann. Það er ástæðan því að hann hefur gengið til liðs við góðgerðasamtökin Movember en þau svipa til Mottumars á Íslandi.
„Ég tel að karlmenn hafi þetta egó: Ég er karlmaður, ég get gert þetta sjálfur. Ég get losnað við þetta eða þetta fer. Sem karlmaður þá byggir þú þennan vegg í kringumþig en þú verður bara að brjóta hann niður og leyfa fólki að hjálpa þér. Þetta tekur á andlega og þú getur ekki hjálpað þér nema þú talir við einhvern,“ sagði Lansbury að endingu.