Ívilnanir vegna rafmagnsbíla reiðarslag fyrir bílasala Jakob Bjarnar skrifar 27. október 2023 13:59 Björn hefur þungar áhyggjur af því hvernig staðið verður að breytingum á ívilnunum vegna kaupa á rafmagnsbíl. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hans verða það einungis viðskiptavinir umboðanna sem njóta þeirra. vísir/vilhelm Bílasalar voru að uppgötva sér til mikillar hrellingar að allar ívilnanir ríkisins til fólks sem vill kaupa sér rafmagnsbíl stuðli að viðskiptum við umboðin meðan þeir sitja eftir með sárt ennið.
Í fréttum hefur það komið fram að um áramót falli ívilnun til þeirra sem kaupa rafmagnsbíl úr gildi en þeir fái hins vegar, með því að sækja um, endurgreiddar 900 þúsund krónur beint úr ríkiskassanum eða Orkusjóði eins og það heitir. „Við höfum flutt inn bíla í mörg ár með áherslu á innflutning á rafmagnsbílum. Í fréttum í gær sáum við upplýsingar um nýju ívilnunina sem á að koma á rafmagnsbíla í formi beins fjárstuðnings til kaupanda. Samkvæmt okkar heimildum gildir þetta eingöngu um óskráða nýja bíla sem þýðir að umboðin munu sitja ein að kjötkötlunum: Með einu pennastriki eru aðilar eins og við settir út í kuldann og búið að kippa grundvelli undan okkar rekstri. Þetta er reiðarslag fyrir okkur,“ segir Björn Sigurðsson sem er einn eigenda fyrirtækis sem heitir Auto Trade sem einnig rekur Stóru Bílasöluna. Kippir fótum undan rekstrinum Björn segir að ef þessi verður niðurstaðan þá muni þetta einfaldlega kippa fótum undan rekstrinum. Hann segir að það geti varla verið vilji löggjafans að slíkt ójafnræði ríki og honum er til efs að þetta fái staðist samkeppnislög; að hygla einum en ekki öðrum. Björn segir tugi bílasala vera undir þessum hatti. Ef þeir selja rafmagnsbíl undir 5,5 milljónum þurfi þeir ekki að borga neinn virðisaukaskatt af sölunni. Þessu á að breyta um áramótin en Björn hafði gert ráð fyrir því að þetta myndi lækka, vatnast út á nokkrum árum, að ívilnunin myndi fara niður í 4,5 milljónir og þannig koll af kolli. En nú standi hins vegar til að kollvarpa kerfinu. „Þetta mun koma niður á neytendum. Við höfum sérhæft okkur í rafbílum á bilinu 4-6 milljónir sem eru yngri en þriggja ára. Þessir bílar munu hækka sem nemur virðisaukaskatti og kaupandi mun ekki geta fengið ívilnun á móti,“ bendir Björn á. Og telur líklegt að rafmagnsbílar muni hækka um tuttugu prósent plús. Björn skilur ekki alveg hvernig það eigi að verða til að hraða rafbílavæðingu bílaflotans. Rafmagnsbílar bara fyrir þá ríku Björn segir jafnframt þetta þýða, með öðrum orðum, að ívilnunin mun falla þeim í skaut sem hafa meira milli handanna og eruð þeirri aðstöðu að kaupa nýja bíla af umboðum. „Sem munu nú vera laus við samkeppni frá „gráa“ markaðnum og þar með verðpressu. Þeir sem lægri hafa laun hafa engan hvata til að fara yfir í rafbíla.“ Björn segir ennfremur að þar sem þetta leggist á útgjaldalið fjárlagafrumvarps en ekki skattahliðinni þá sé engin leið til að mótmæla þessu í samráðsgátt. Hann hefur skrifað erindi til ráðamanna og vonast til að gerðar verði á þessu breytingar áður en þetta verði að veruleika. „En samkvæmt áreiðanlegum heimildum sem ég hef í dag þá að þetta bara að gilda um nýja bíla.“
Vistvænir bílar Orkuskipti Rekstur hins opinbera Skattar og tollar Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Húrra dregur saman seglin Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Fleiri fréttir Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Sjá meira