Lífið

Nökkvi Fjalar og Embla hvort í sína áttina

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ástin er kulnuð hjá samfélagsmiðlastjörnunum.
Ástin er kulnuð hjá samfélagsmiðlastjörnunum. Embla Wigum

Frumkvöðullinn Nökkvi Fjalar Orrason og Embla Gabríela Wigum, förðunarfræðingur og samfélagsmiðlastjarna eru farin hvort í sína áttina. Parið byrjaði saman vorið 2022.

Parið hefur búið saman í London síðastliðið ár, sem að eigin sögn er draumaborg þeirra beggja. 

DV greinir frá sambandsslitunum.

Embla er ein vinsælasta samfélagsmiðlastjarna landsins en hún er með rúmlega 2,5 milljón fylgjenda á samfélagsmiðlinum TikTok og 200 þúsund á Instagram. 

Þá hlaut hún tilnefningu sem framúrskarandi ungur Íslendingur í fyrra fyrir afrek sín á sviði menningar.

Nökkvi Fjalar er einn stofnanda umboðsskrifstofunnar Swipe Media, en sagði skilið við fyrirtækið í byrjun árs. Hann er ávallt með puttann á púlsinum þegar kemur að jákvæðri hvatningu og er duglegur að deila því með fylgjendum sínum á Instagram.


Tengdar fréttir

Frægir fundu ástina árið 2022

Á hverju ári greinir Vísir reglulega frá nýjum pörum og þá sérstaklega kemur að þekktum Íslendingum.

Nökkvi Fjalar og Embla Wigum í paraferð í París

Parið Nökkvi Fjalar og Embla Wigum skelltu sér í paraferð til Parísar þar sem þau eru stödd þessa dagana að njóta borg ástarinnar. Parið byrjaði nýlega saman eftir að hafa upphaflega flutt til London sem vinir og viðskiptafélagar. 

„Verður gaman að taka loksins í spaðann á okkar manni“

SWIPE Media gerði á dögunum umboðssamning við sinn stærsta kúnna til þessa, áhrifavaldinn Dami sem nýtir samfélagsmiðla sína í að taka upp jákvæð og falleg skilaboð sem aðrir geta sent sín á milli ásamt því að vera með sitt eigið vörumerki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.