Skref hafi verið tekin til að koma í veg fyrir að VAR-klúðrið endurtaki sig Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. október 2023 07:32 Simon Hooper kíkir í skjáinn góða í leik Tottenham og Liverpool. Matthew Ashton - AMA/Getty Images Howard Webb, yfirmaður ensku dómarasamtakana PGMOL, segir að mörg skref hafi verið tekin undanfarna daga til að reyna að koma í veg fyrir að álíka VAR-klúður komi aftur upp eins og gerðist í leik Tottenham og Liverpool fyrir rúmri viku síðan.
Tottenham og Liverpool mættust í ensku úrvalsdeildinni þann 30. september síðastliðinn þar sem heimamenn í Tottenham unnu dramatískan 2-1 sigur í leik þar sem sjálfsmark Joel Matip í uppbótartíma réði úrslitum. Það voru þó ekki úrslit leiksins eða sjálfsmarkið sem gripu fyrirsagnirnar að leik loknum, heldur var það ótrúlegt VAR-klúður um miðjan fyrri hálfleik þar sem löglegt mark var tekið af Luis Diaz, leikmanni Liverpool. „Við eru búnir að stíga ansi mörg skref til að koma í veg fyrir að mistök sem þessi gerist ekki aftur,“ sagði Webb í þættinum Mic'd Up þar sem farið er yfir stóru dómana í hverri umferð fyrir sig í ensku úrvalsdeildinni. „Eitt af því sem við þurfum að skoða, og erum búnir að vera að skoða, eru verkreglur um samskipti, sem er eitthvað sem er mjög mikilvægt í myndbandsdómgæslu til að koma í veg fyrir slík mistök.“ „Við kölluðum alla dómarana saman og ræddum um þörfina á því að fara mjög gaumgæfilega í gegnum þessa verkferla. Við erum virkilega vonsviknir fyrir hönd leiksins og við erum virkilega vonsviknir yfir því hvernig fór fyrir orðsporinu okkar.“
Enski boltinn Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport Leikurinn í kvöld klárast rétt fyrir miðnætti og því dræm mæting Sport Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjá meira