Lífið

Læknar sinntu háls­brotinni risa­eðlu og fót­brotnum Sonic

Magnús Jochum Pálsson og Helena Rós Sturludóttir skrifa
Eigandi doppótts apabangsa mundar sprautuna á meðan læknir heldur honum föstum.
Eigandi doppótts apabangsa mundar sprautuna á meðan læknir heldur honum föstum. Vísir/Ívar Fannar

Fjórar heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu, sem breytt hafði verið í bangsaspítala, önnuðu vart eftirspurn í dag þegar þangað streymdu misslasaðir bangsar og áhyggjufullir eigendur þeirra

Sinna þurfti fjölda beinbrota bangsa af öllum tegundum, allt frá hálsbrotnum risaeðlum yfir í fótbrotna broddgelti. Einnig þurfti að sinna ungum eigendum bangsanna og veita þeim sáluhjálp.

Hvað kom fyrir risaeðluna þína? 

„Hún datt eiginlega og endaði á að vera hálsbrotin,“ sagði Hlynur, ungur risaeðlueigandi, í viðtali við fréttastofu.

Ah hálsbrotnaði hún. Og hvað þurfti eiginlega að gera?

„Ja nú, hún fékk svona umbúðir og plástur,“ sagði hann. 

Og er allt í lagi með hana núna?

„Já, smá,“ sagði hann að lokum.

Fjöldi fólks heimsótti bangsaspítalann í dag.Vísir/Ívar Fannar

Sumir bangsanna þurftu að fara í röntgen

Meiðsli sumra bangsa kröfðust nánari skoðunar í röntgenmyndatöku.

Það var veið að taka röntgen veistu eitthvað hvað kom út úr því? 

„Hann er með brotin bein,“ sagði Heiðrún, eigandi slasaðs kóalabjörns.

Beinbrot á tveimur stöðum var niðurstaðan og vissi Heiðrún vel hvað kóalabjörninn hennar þurfti til að láta sér batna: „Hann þarf að sofa vel og borða hollt,“ sagði hún.

Hinn blái Sonic mætti stórslasaður í dag eftir að hafa lent í ógurlegum hremmingum.

„Hann er fótbrotinn,“ sagði Bjarmi um Sonic-bangsann sinn. Aðspurður hvernig hann hefði slasað sig sagði hann „Ööhm, hann datt í risastóra holu.“

Sonic getur ekki hlaupið hratt ef hann er fótbrotinn.Vísir/Ívar Fannar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.