Lífið

Ásdís Rán ástfangin í Búlgaríu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ásdís Rán og Þórður eru bæði búsett í Búlgaríu.
Ásdís Rán og Þórður eru bæði búsett í Búlgaríu. Ásdís Rán

Fyrirsætan og Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur fundið ástina í faðmi athafnamannsins Þórðar Daníels Þórðarsonar.

Ásdís Rán og Þórður kynntust í Búlgaríu þar sem þau eru bæði búsett. Ástin kviknaði í byrjun sumars og virðist blómstra á milli þeirra. 

Ásdís Rán birti mynd af sér í faðmi Þórðar með textanum „á bakvið tjöldin,“ en hún fer með hlutverk í tökum á nýjustu mynd ítalska leikstjórans Lor­enzo Faccenda. Ásdís fer með hlutverk hjákonu auðkýfings sem er eitt af aðalhlutverkum kvikmyndarinnar og jafnframt hennar stærsta sem leikkona til þesssa. 

Parið kynntist í Búlgaríu þar sem hafa verið búsett síðastliðin ár.Ásdís Rán.

Þórður er fyrrum útvarpsmaður útvarpstöðvarinnar FM957 og rekur í dag fyritækið Icestore sem selur níkótínpúða og rafsígarettur í borg­inni Plovdiv í Búlgaríu þar sem hann hefur búið síðastliðin fimm ár. 

Ásdís þrjú börn úr fyrra sambandi og Þórður tvö.


Tengdar fréttir

Ásdís Rán á OnlyFans

Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir, gjarnan kölluð Ísdrottningin, hefur haslað sér völl á efnisveitunni OnlyFans. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.