Van Dijk gæti endað í fjögurra leikja banni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 28. ágúst 2023 23:30 Van Dijk var ekki sáttur. Ian MacNicol/Getty Images Virgil van Dijk, miðvörður Liverpool, gæti verið á leið í fjögurra leikja bann í ensku úrvalsdeildinni.
Van Dijk sá rautt þegar Liverpool kom til baka gegn Newcastle United um liðna helgi. Marki undir og manni færri kom Bítlaborgarliðið til baka og vann frábæran 2-1 sigur þökk sé tvennu varamannsins Darwin Núñez. Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, var allt annað en sáttur með rauða spjaldið og hvað þá að Van Dijk væri á leiðinni í þriggja leikja bann. „Við þurfum að skoða þetta betur. Það er engin meðvituð snerting frá Virg, það er snerting en á leið í boltann er lítil snerting. Fyrir þessa snertingu, að fá þrjá leiki í bann. Guð minn góður,“ sagði sá þýski. Nú hefur enski miðillinn The Times greint frá því að Van Dijk gæti fengið fjögurra leikja bann vegna hegðunar sínar í garð dómara leiksins, John Brooks, í kjölfar rauða spjaldsins. Van Dijk neitaði að yfirgefa völlinn sem og hann lét Brooks fá það óþvegið. Enska knattspyrnusambandið tekur alvarlega á svona málum og telur The Timas líklegast að Van Dijk fái auka leik í bann vegna hegðunar sinnar. Gangi það eftir mun miðvörðurinn missa af leikjum gegn Aston Villa, Úlfunum, West Ham United og Tottenham Hotspur.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Handbolti Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Sport „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ Enski boltinn ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Fótbolti Snorri semur til 2032 Handbolti Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Íslenski boltinn „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Körfubolti Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Handbolti KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Körfubolti Fleiri fréttir Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Sjá meira