Dagur jafnaði úr víti á lokasekúndunni gegn Kolstad Smári Jökull Jónsson skrifar 26. ágúst 2023 17:00 Sigvaldi Björn Kolstad Hið stjörnum prýdda lið Kolstad gerði jafntefli á heimavelli gegn Arendal þegar norska úrvalsdeildin í handbolta fór af stað í dag. Þrír Íslendingar komu við sögu í leiknum.
Töluvert hefur verið fjallað um norska liðið Kolstad í sumar og þá aðallega þau gríðarlegu fjárhagsvandræði sem félagið er í. Leikmenn liðsins þurftu að taka á sig launalækkun en norsku landsliðsmennirnir Sandor Sagosen og Magnus Röd gengu til liðs við félagið í sumar. Sigvaldi Björn Guðjónsson leikur með félaginu en Magdeburg nældi í Janus Daða Smárason þegar vandræði Kolstad urðu ljós. Í dag lék Kolstad síðan sinn fyrsta leik í norsku úrvalsdeildinni en félagið varð tvöfaldur meistari á síðasta tímabili. Liðið tók á móti Arendal á heimavelli en með Arendal leika þeir Dagur Gautason og Hafþór Vignisson. Fyrri hálfleikur var jafn og skiptust liðin á að hafa forystuna. Staðan í hálfleik var 16-14 fyrir Kolstad sem náði góðum kafla í byrjun seinni hálfleiks og komst fimm mörkum yfir í stöðunni 22-17. Þegar tíu mínútur voru eftir var staðan 30-24 heimamönnum í vil og allt virtist stefna í þægilegan sigur. Þá fór hins vegar allt í skrúfuna hjá Kolstad. Leikmenn Arendal minnkuðu muninn jafnt og þétt og aðeins munaði einu marki 31-30 þegar fimm mínútur voru eftir. Kolstad skoraði þá tvö mörk í röð og virtist ætla að sigla sigrinum heim. Gestirnir voru ekki á því, skoruðu þrjú síðustu mörkin og fengu síðan vítakast um leið og tíminn rann út. Dagur Gautason steig á vítapunktinn og skoraði og tryggði Arendal sætt jafntefli, lokatölur 33-33. Dagur skoraði sex mörk úr sex tilraunum fyrir Arendal í dag og Hafþór Vignisson eitt. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði átta mörk fyrir Kolstad.
Norski handboltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira