HK með öruggan sigur og er með í baráttunni Smári Jökull Jónsson skrifar 24. ágúst 2023 21:45 HK á góða möguleika á sæti í Bestu deild á næsta tímabili. HK Fótbolti HK vann 5-0 sigur á Grindavík í Lengjudeild kvenna í kvöld. Kópavogsliðið fer upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum og er með í baráttunni um sæti í Bestu deildinni.
HK tók á móti Grindavík í Kórnum í kvöld. Fyrir leikinn var HK í þriðja sæti Lengjudeildarinnar, með jafn mörg stig og Fylkir. Það var aldrei spurning hvar sigurinn í kvöld myndi enda. Grindavík hélt í við HK fyrsta hálftímann en þó var HK 3-0 yfir í hálfleik. Emma Sól Aradóttir skoraði á 33. mínútu og Brookelyn Entz bætti tveimur mörkum við fyrir hálfleik. Í síðari hálfleik hélst staðan 3-0 lengi vel en tvö mörk frá Örnu Sól Sævarsdóttur og Guðmundu Brynju Óladóttur tryggðu HK 5-0 sigur. HK fer upp í annað sætið eftir sigurinn. Liðið er með 32 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Víkings og þremur stigum á undan Fylki. HK hefur leikið sextán leiki, Víkingur fimmtán en Fylkir fjórtán. Fylkir spilar á morgun gegn Fram og getur þá náð öðru sætinu á nýjan leik. Grindavík er um miðja deild og siglir fremur lygnan sjó. Í Mosfellsbænum vann Afturelding 3-1 sigur á Augnabliki sem þegar er fallið úr deildinni. Díana Ásta Guðmundsdóttir kom Augnabliki í 1-0 en Alexandra Emilsdóttir jafnaði metin fyrir gestina undir lok fyrri hálfleiks. Í síðari hálfleik tryggðu svo þær Sigrún Eva Sigurðardóttir og Meghan Root Aftureldingu 3-1 sigur. Afturelding er í 5. sæti deildarinnar, með jafn mörg stig en Grótta sem er með betri markatölu og hefur leikið einum leik færra. Augnablik er neðst í deildinni og þegar fallið.
Íslenski boltinn Lengjudeild kvenna Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Fleiri fréttir Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjá meira