Í morgun sendi stjórn VR frá sér tilkynningu þar sem kom fram að stéttarfélagið hafi ákveðið hafi verið að hætta í viðskiptum við Íslandsbanka. Félagið hafði hótað þessu í lok júnímánaðar eftir að greint var frá því að bankinn hafi gerst sekur um alvarlegt lögbrot við sölu ríkisins á hlut í bankanum. Í tilkynningunni segir að viðbrögð bankans hafi verið ófullnægjandi.
Ekki nóg gert
Í sumar hafa meðal annars bankastjóri Íslandsbanka, einn framkvæmdastjóra bankans og yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar hans hætt störfum. Þá hætti helmingur stjórnar einnig störfum vegna sölunnar. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir það þó ekki hafa verið nóg.
„Það sem við vildum gera með þessari ákvörðun var að stíga fast til jarðar, setja strik í sandinn. Sýna það skýrt að þessi háttsemi mun hafa afleiðingar, ekki bara núna heldur líka í framtíðinni ef aðrir haga sér með þeim hætti og við eigum í viðskiptum við viðkomandi fyrirtæki. Setja ákveðið fordæmi,“ segir Ragnar.
Dapurlegt af stjórnendum
Hann segir það vera dapurlegt að horfa upp á stjórnendur sem þekkja reglur fjármálafyrirtækja svo vel, brjóta þær jafn mikið og raun ber vitni.
„Það eru gerðar gríðarlegar kröfur til starfsfólks sem starfar hjá fjármálafyrirtækjum. Ekki bara af eftirlitsaðilum, Seðlabankanum, fjármálaeftirlitinu, löggjafanum heldur líka stjórnendum sem síðan ganga fram með þeim hætti sem þeir gera. Þetta á ekki að þekkjast í okkar samfélagi sérstaklega ekki miðað við það sem undan hefur gengið, eins og heilt fjármálahrun,“ segir Ragnar.
Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur miðstjórn Alþýðusambands Íslands einnig ákveðið að hætta í viðskiptum við bankann. Félagsmenn ASÍ eru 127 þúsund talsins en Finnbjörn A. Hermannsson, formaður sambandsins, gaf ekki kost á sér í viðtal vegna málsins þegar fréttastofa óskaði eftir því fyrr í dag.