Veiði

Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum

Karl Lúðvíksson skrifar
Ytri Rangá er aflahæsta laxveiðiáinn það sem af er sumri
Ytri Rangá er aflahæsta laxveiðiáinn það sem af er sumri

Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum sýna alveg svart á hvítu hvað þurrkasvæðin á landinu eru að koma illa út og árnar á þeim svæðum að komast vatnsmagn sem er á mörkunum við að vera veiðanlegt.

Það voru fimm laxveiðiár sem voru með meira en 100 laxa viku og þar er Ytri Rangá efst með 362 laxa veidda í vikunni og situr áinn í toppsæti listans með 1.721 lax en það er samt 600 löxum minni veiði en í fyrra.  Veiðin fór frekar seint af stað í henni sem lofar vonandi góðu fyrir seinni helminginn af tímabilinu. Eystri Rangá skilaði 256 löxum og er með heildarveiði upp á 1.426 laxa sem er um 500 löxum minna en í fyrra.

Hinar árnar sem voru með yfir 100 laxa viku voru Selá með 131 lax, Miðfjarðará með 111 laxa og Hofsá með 104 laxa. Árnar á vesturlandi eru flestar að eiga það mjög erfitt vegna vatnsleysis nema þá Haffjarðará en veiðin í henni síðustu vikuna var 81 lax og heildarveiðin í henni 723 laxar í sumar. Norðurá, Langá, Hítará, Gljúfurá og allar árnar meira og minna í dölunum þurfa nauðsynlega á góðri úrkomu að halda en því miður er hún ekki í kortunum næstu daga. Það er alveg ljóst að ofan í frekar slappar smálaxagöngur er þessi þurrkatíð sem nú hefur staðið yfir í næstum því sjö vikur að gera þetta tímabil að einu af þeim verstu í mörgum ánum. Ljósi punkturinn er batinn í ánum á norðausturlandi og eins í Laxá í Aðaldal en hún hefur verið töluvert betri en undanfarin sumur.






×