Timber sleit krossband í fyrsta leik og þarf í aðgerð Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. ágúst 2023 14:48 Búast má við því að Jurrien Timber verði frá í lengri tíma. Visionhaus/Getty Images Varnarmaðurinn Jurrien Timber, sem gekk í raðir Arsenal frá Ajax í sumar, sleit krossband í fyrsta leik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni er Arsenal vann 2-1 sigur gegn Nottingham Forest.
Timber gekk í raðir Arsenal fyrir 34 milljónir punda í síðasta mánuði og hafði farið vel af stað með liðinu á undirbúningstímabilinu. Þá var hann einnig í byrjunarliðinu þegar Arsenal og Manchester City börðust um Samfélagsskjöldinn áður en tímabilið í ensku úrvalsdeildinni hófst. Timber var aftur í byrjunarliði Arsenal er liðið tók á móti Nottingham Forest í fyrsta leik tímabilsins síðastliðinn laugardag, en þurfti að fara af velli snemma í síðari hálfleik vegna meiðsla. Nú hefur það verið staðfest að meiðslin eru alvarleg. Arsenal greindi frá því á samfélagsmiðlum sínum nú fyrir skemmstu að Timber hefði slitið krossband og að hann væri á leið í aðgerð á næstu dögum. We're all with you, Jurrien ❤️— Arsenal (@Arsenal) August 16, 2023 Í yfirlýsingu Arsenal segir að leikmaðurinn verði frá í einhvern tíma, en nánari tímarammi er ekki gefinn upp. Timber, sem er 22 ára, lék 47 leiki fyrir Ajax á síðasta tímabili og voru mörg stórlið sem höfðu áhuga á því að fá hann í sínar raðir. Að lokum var það Arsenal sem hreppti hnossið, en liðið þarf nú að reiða sig af án hollenska landsliðsmannsins næstu vikur og mánuði.
Enski boltinn Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Sjá meira