Mikil lægð mun stjórna veðrinu næstu daga Atli Ísleifsson skrifar 16. ágúst 2023 07:09 Reiknað er með hita á bilinu tólf til tuttugu stig í dag. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag þar sem verður skýjað og væta af og til en þurrt að kalla og bjartara yfir fyrir austan.
Reiknað er með hita víða á bilinu tólf til tuttugu stig að deginum, hlýjast norðaustanlands. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að mikil lægð sé að koma sér fyrir suður í hafi og muni hún stjórna veðrinu hjá okkur næstu daga. Austlægar áttir verði ríkjandi og muni lægðin dæla hlýjum og rökum loftmassa yfir landið fram yfir helgi. „Á morgun verður vætusamt sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið verður norðaustantil. Útlit fyrir fínasta sumarveður um helgina og ætti að sjást til sólar í flestum landshlutum, nema austast verður líklega viðloðandi þokusúldarloft, einkum við sjávarsíðuna,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðaustlæg átt, 5-13 m/s, hvassast suðvestantil. Rigning, jafnvel talsverð suðvestan- og vestanlands, en þurrt að kalla austast á landinu. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast norðaustantil. Á föstudag: Austlæg átt, 5-10, en 10-15 syðst. Dálítil rigning eða súld suðaustantil og vestast á landinu, en annars þurrt að kalla. Hiti 12 til 20 stig, en mun svalara í þokulofti við austurströndina. Á laugardag: Austlæg átt 3-10 en 10-15 við suðausturströndina. Skýjað að mestu og smásúld austanlands, en annars bjart með köflum. Hiti 9 til 20 stig, svalast fyrir austan. Á sunnudag: Austlæg átt og lítilsháttar rigning eða súld öðru hverju, en bjart með köflum á Vestur- og Norðurlandi. Hiti breytist lítið. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir norðlæga átt. Væta með köflum sunnan- og vestanlands, en annars úrkomulítið. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast sunnan heiða.
Veður Mest lesið Falsaði bréf frá skólastjóra á kostnað Kennarasambandsins Innlent Hefði stoppað Magga Mix á punktinum Innlent Þarf að láta sér átta ára dóm lynda Innlent Komst ekki í golf í gær en skellti sér í morgun Innlent Hvetja ráðuneytið til að kynna sér málið og leiðrétta rangfærslur Innlent Palestínski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið Innlent „Það er samkeppni um starfsfólk“ Innlent Rúmlega 300 ökumenn sviptir eða sektaðir í dag á Kringlumýrarbraut Innlent Stjórnlaus gróðureldur ógnar heimilum á Krít Erlent Sautján ára drengur drukknaði á Hróarskeldu Erlent Fleiri fréttir Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Sjá meira