Útvistarfatnaður frá Icewear gerir góða verslunarmannahelgi betri Icewear 1. ágúst 2023 12:16 Grunnlagið hentar sérstaklega vel í alls kyns útivist. Um er að ræða mjúka og hlýja Merino ull eða fljótþornandi efni sem er frábært innsta lag, bæði sem buxur og peysa. Myndir/@robertarnar_ Langþráð verslunarmannahelgi er næstu helgi og þá má búast við því að stór hluti landsmanna fari í lengri og styttri ferðalög.
Þrátt fyrir að enn sé sumar er allra veðra von og því betra að vera rétt klæddur þegar þessi mesta ferðahelgi ársins gengur í garð. „Hjá Icewear finnur þú mikið úrval af fallegum útivistarfatnaði á sanngjörnu verði fyrir alla fjölskylduna,“ segir Elma Bjartmarsdóttir, markaðsstjóri Icewear. „Í verslunum okkar finnur þú allt sem þú þarft fyrir verslunarmannahelgina.“ 2,5 laga skel er létt og heldur góðum hita. Hún segir Icewear bjóða upp á gott úrval af vestum og ullarpeysum, bæði þessari gömlu góðu ullarpeysu og svo mikið úrval af Merino ullarpeysum sem stinga ekki. „Regnkápurnar okkar eru mjög vinsælar og einnig pollabuxurnar. Hjá okkur má finna gott úrval af skeljum, bæði buxum og jökkum, og einnig flíspeysum og hettupeysum og auðvitað húfum, vettlingum og ýmsum fylgihlutum.“ Hjá Icewear finnur þú mikið úrval af fallegum útivistarfatnaði á sanngjörnu verði fyrir alla fjölskylduna. Grunnlagið er að sögn Elmu leynitrixið í bakpokanum. „Grunnlagið hentar sérstaklega vel í alls kyns útivist. Þetta er mjúk og hlý Merino ull eða fljótþornandi efni sem er frábært innsta lag, bæði sem buxur og peysa. Það fer afar lítið fyrir því í bakpokanum yfir daginn en er nauðsynlegt á kvöldin þegar fer að kólna.“ Softshell jakkinn er þriggja laga. Innst er hitaeinangrandi flísefni sem gerir flíkina hlýja og notalega. Jakkinn nýtist jafnt sem yfirhöfn og sem hitaeinangrandi miðlag. Icewear býður einnig upp á gott úrval af gönguskóm og ekki má gleyma hlýju sokkunum sem eru ómissandi um verslunarmannahelgina, hvort sem gist er í tjaldi eða dvalið í sumarhúsi. Thermore vestið er frábær hversdags ytri-flík eða sem einangrun undir skeljakka á köldum dögum. Létt og þægilegt dúnvesti. Icewear er með heila útivistarlínu sem er með íslenskri ullareinangrun sem er nýsköpun á heimsvísu að sögn Elmu. „Sú lína bara stækkar milli ára og við munum kynna spennandi nýjungar þar með haustinu. Nú í sumar höfum við bætt við nýjum litum í allar vinsælustu vörur okkar og því óhætt að segja að úrvalið sé gott í verslunum okkar. Ég hvet sem flesta til að kíkja tímanlega við áður en verslunarmannahelgin rennur upp og minni á að Vinir Icewear fá sérkjör en hægt er að skrá sig hér.“ Mohair peysa og falleg grænhvít ullarpeysa. Nánar á icewear.is.
Heilsa Tíska og hönnun Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira