Lífið

Ariana Grande skildi giftingar­hringinn eftir heima

Máni Snær Þorláksson skrifar
Ariana Grande er sögð vera að skilja við eiginmann sinn Dalton Gomez. Hér sést hún með leikurunum Jonathan Bailey og Andrew Garfield.
Ariana Grande er sögð vera að skilja við eiginmann sinn Dalton Gomez. Hér sést hún með leikurunum Jonathan Bailey og Andrew Garfield. Getty/Karwai Tang

Tónlistarkonan Ariana Grande er sögð vera að skilja við eiginmann sinn, fasteignasalann Dalton Gomez. Hún var ekki með giftingarhringinn á sér þegar hún mætti á Wimbledon-mótið í London um helgina.

Grande og Gomez hafa verið skilin að borði og sæng síðan í janúar samkvæmt heimildarmanni Page Six, sem sagður er vera náinn parinu. Samkvæmt heimildarmanninum á parið að hafa komist saman að þeirri niðurstöðu að binda endi á sambandið. 

Þá er Gomez sagður hafa reynt að bjarga hjónabandinu með því að heimsækja Grande á kvikmyndasettinu fyrir söngleikjamyndina Wicked. Það hafi þó ekki virkað.

Orðrómur um að hjónaband þeirra stæði á brauðfótum kviknaði um helgina þegar Grande mætti án hringsins á Wimbledon-mótið. Þar sat hún við hlið leikaranna Andrew Garfield og Jonathan Bailey. Sá síðarnefndi leikur einmitt með Grande í Wicked.

Ef glöggt er að gáð má sjá að Grande var ekki með giftingarhringinn á sér um helgina.Getty/Karwai Tang

Samkvæmt Page Six sást síðast til Grande með hringinn á sér í síðastliðnum apríl þegar hún var á tónleikum í London.


Tengdar fréttir

Ariana Grande gengin í það heilaga

Söngkonan Ariana Grande giftist unnusta sínum, fasteignasalanum Dalton Gomez, um helgina. Athöfnin var lágstemmd og voru færri en tuttugu viðstaddir þegar söngkonan og Gomez gengu í það heilaga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.