Lífið

Vill ekki týna sjálfum sér í bransanum

Máni Snær Þorláksson skrifar
Tom Holland á frumsýningu nýjustu leiknu myndarinnar um Köngulóarmanninn. Það er spurning hvort þær verði fleiri með hann undir grímunni.
Tom Holland á frumsýningu nýjustu leiknu myndarinnar um Köngulóarmanninn. Það er spurning hvort þær verði fleiri með hann undir grímunni. EPA/DAVID SWANSON

Enski leikarinn Tom Holland, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Köngulóarmaðurinn, segist ekki vera mikið fyrir kvikmyndagerðarbransann. Hann vill frekar einbeita sér að því sem veitir honum hamingju. 

„Ég dýrka að búa til kvikmyndir en ég mér líkar ekki við Hollywood, það er ekki fyrir mig,“ segir leikarinn í viðtali í hlaðvarpinu On Purpose í umsjón Jay Shetty. Þar sagði hann til að mynda að það væri óvenjulegt að fara í viðtal sem þetta. Honum hafi þó liðið vel í því og fundist eins og hann gæti opnað sig.

Holland segir í viðtalinu að kvikmyndabransinn hræði hann. „Ég skil að ég er hluti af þessum bransa og ég nýt þeirra góðu samskipta sem ég hef átt í honum. En ég er alltaf að leita að leiðum til að koma mér úr honum, reyna að lifa eins eðlilegu lífi og hægt er.“

Þá segir Holland að sumir af vinum hans hafi týnt sjálfum sér í bransanum og að hann óttist að það sama geti komið fyrir sig. Þess vegna vilji hann ekki leggja áherslu á kvikmyndaferilinn sinn.

„Ég er bara virkilega, virkilega einbeittur að því sem gerir mig hamingjusaman, sem er fjölskyldan mín og vinir mínir,“ segir Holland. Hann og kvikmyndastjarnan Zendaya eru par en þau keyptu sér einmitt hús saman á síðasta ári.

Holland segist einnig hafa gaman af því að smíða, fara í golf og hjálpa móður sinni með góðgerðarsamtökin sín „Þetta eru hlutirnir sem gera mig virkilega hamingjusaman og þetta eru hlutirnir sem ég ætti að passa upp á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.