Veiði

Laxagöngur víða nokkuð góðar

Karl Lúðvíksson skrifar

Það eru allar líkur á að sumarið verði yfir meðallagi ef það tölur laxa sem hafa gengið í gegnum laxateljara landsins eru skoðaðar.

Ef við byrjum á að skoða tölur úr laxateljaranum í Elliðaánum þá er mjög góð ganga að koma í árnar en í gær fóru 201 lax í gegnum teljarann og heildartalan er 653 sem er í raun rosaleg tala því það eru tvær til þrjár vikur eftir af göngutíma og næstu tvær vikur eru yfirleitt tíminn sem stærsta gangan fer í gegn.

Í Korpu eru gengnir 311 laxar sem er líka mjög góð ganga og neðra svæðið í ánni eins og í Elliðaánum er "smekkað" af laxi eins og veiðimenn hafa gjarnan á orði. Til að setja það í samhangi hvað gangan í þessar tvær perlur Reykjavíkur er góð þá eru aðeins 194 laxar gengnir í Langá á Mýrum en hún er samt sem þaður þekkt fyrir að fá sínar stærstu göngur á fyrsta stóra júlíflóðinu og dagana þar í kring en það er á morgun. 

231 lax hefur gengið í gegnum Glanna í Norðurá og heildarveiðin í ánni er komin yfir 300 laxa sem er mjög gott. Það eru allar líkur á að Norðurá, miðað við þessar tölur, gæti farið yfir 1.500 laxa veiði og jafnvel hærra ef takturinn í göngunum heldur svona áfram. 






×