Lífið

Mok­veiði hjá efni­legustu dorgurum landsins

Bjarki Sigurðsson skrifar
Sigurvegararnir með verðlaunin sín.
Sigurvegararnir með verðlaunin sín. Hafnarfjarðarbær

Árleg Dorgveiðikeppni Hafnarfjarðar fór fram við Flensborgarhöfn í gær. Keppendur voru krakkar á grunnskólaaldri en um er að ræða fjölmennustu dorgveiðikeppni landsins.

Keppnin hefur verið haldin á hverju ári í yfir þrjátíu ár og er á vegum sveitarfélagsins sem skaffar keppendum færi og beitu. Fjölmörg börn voru mætt á bryggjuna, ýmist með foreldrum sínum eða leikjanámskeiðahópum úr Hafnarfirði. Það er þó ekki alltaf góð veiði.

Klippa: Bjartsýnir veiðimenn í Hafnarfirði

„Í gamla daga veiddum við mjög vel, það var áður en það var búið að hreinsa hér strandirnar, skólpið fór beint í ströndina og menn veiddu slatta. Nú veiðast kannski 30-40 fiskar yfir daginn, ekki meira en það,“ segir Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, sem sér um keppnina. Hann var einnig einn af þeim sem hélt fyrstu keppnina fyrir rúmum þrjátíu árum.

Geir Bjarnason hefur staðið vaktina á Dorgveiðikeppni Hafnarfjarðar frá upphafi, þó með hléum.Vísir/Dúi

Þrátt fyrir erfiða veiði í gegnum árin voru krakkarnir vongóðir á bryggjunni áður en keppnin hófst. 

„Ég er að svona veiða og ég er að reyna að veiða svona rosalega stóran fisk og svona alls konar,“ segir Steinar Pálmi Ólafsson, sex ára veiðimaður.

Hvað veiðir þú marga fiska í dag?

„Ég veit það ekki, ég held að ég veiði kannski svona fimm fiska, en ég er alltaf úti á bryggju að veiða og ég náði einu sinni að veiða fisk með franskri kartöflu.“

Steinar Pálmi er reyndur veiðimaður.Vísir/Dúi

Hin átta ára Emma var einnig stórhuga.

Hvað ætlarðu að veiða marga fiska í dag?

„Ég veit það ekki, kannski hundrað fiska,“ segir Emma. 

Emma sagðist mögulega ætla að veiða hundrað fiska.Vísir/Dúi

Og fór það sem svo að 350 veiðimenn mættu á svæðið og unnu bæði Emma og Steinar til verðlauna. Emma veiddi næst mest af öllum, alls fimm fiska, sama og Starkaður sem er sex ára gamall. Sú sem veiddi hins vegar mest var hin níu ára gamla Ebba Katrín sem veiddi níu fiska. 

Krakkar við bryggjuna að bíða eftir að fiskur biti á agnið.Hafnarfjarðarbær

Steinar fékk síðan verðlaun fyrir að veiða stærsta fiskinn. Hann landaði 315 gramma kola en fengu þau öll fjögur veiðistangir í verðlaun. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.