Eigendaskipti fyrirtækja og fimm einföld ráð Rakel Sveinsdóttir skrifar 28. júní 2023 07:01 Breytingar á vinnustöðum eru óhjákvæmilegar en þar skiptir góð og vel íhuguð upplýsingagjöf miklu máli. Ef fyrirtæki eru til dæmis í söluferli eða þreifingar eru um eigendaskipti, er mælt með því að lykilstarfsmenn og stjórnendur séu upplýstir um þreifingarnar eins vel og mögulegt er. Óvissa er það fyrirbæri sem algengast er að valdi fólki vanlíðan og kvíða. Vísir/Vilhelm Það getur verið vandasamt verk að þreifa fyrir sér sölu á fyrirtæki með tilliti til góðrar upplýsingagjafar til starfsfólks.
Því það er ekki hægt að ræða slík mál of snemma; enda ekki tilefni til ef samningar ganga ekki eftir. En það getur líka verið slæmt ef starfsfólk er upplýst of seint. Því oftar en ekki kvisast eitthvað út um þær þreifingar sem mögulega eru í gangi. Þá þarf alltaf að hafa í huga að það fyrirbæri sem er hvað líklegast til að skapa fólki vanlíðan og kvíða er óvissa. Hér eru fimm einföld atriði sem gott er að hafa í huga. 1. Að upplýsa lykilstarfsmenn snemma Hvort sem eigendum hugnast það eða ekki, er mikilvægt að upplýsa lykilstjórnendur og starfsmenn snemma í ferlinu. Því þetta er hópur sem mun skipta miklu máli, hvernig sem þreifingar fara. Annars vegar er þetta hópur sem nýir eigendur horfa meðal annars til þegar fyrirtæki eru keypt. Hins vegar er þetta hópur sem er dag frá degi á gólfinu með öðru starfsfólki; mannauðinum sjálfum. Þá eru lykilstarfsmenn oftast sá hópur sem kalla þarf til ef þreifingar ná fram að ganga og samningar eru gerðir. Því gagna- og upplýsingagjöfin sem salan mun kalla á, mun meðal annars byggja á upplýsingum sem lykilstarfsmenn veita. 2. Að upplýsa starfsfólk og aðra hagaðila Söluferli getur tekið á. Sumir líkja því sem hálfgerðri rússibanareið. Þreifingar eru í gangi með einum aðila. Síðan kemur bakslag. Ekkert virðist í gangi. Aðrar þreifingar fara af stað eða jafnvel nýir aðilar koma að borði og hafa áhuga. Það getur allt gerst. Almenna reglan er þó sú að þegar fyrirtæki er selt, sé það undirbúið vel með hvaða hætti starfsfólk er upplýst um leið og búið er að skrifa undir og það sama á við um helstu hagaðila. Að upplýsa um kaupin er þó ekki nóg; upplýsingagjöfin þarf að blása byr í brjóst starfsfólks, sama hvaða breytingar síðar taka við. 3. Útskýringar Það er eðlilegt að starfsfólk upplifi smá ótta og áhyggjur þegar breytingar liggja í loftinu. Þetta eru mannlegar og eðlilegar tilfinningar. Stundum hefur starfsfólk upplifað kvíða eða ákveðna vanlíðan ef óvissa hefur verið um tíma, hvort og þá hvert fyrirtækið verður selt. Þegar að því kemur að starfsfólk og hagaðilar eru upplýstir um söluna, þarf því að standa vel að því að útskýra fyrir starfsfólki hvers vegna fyrirtækið var selt; hver var söluhvati eigenda? Hvers vegna töldu eigendur vænlegt að selja? Hver er framtíðarsýnin? Með tilliti til þeirra breytinga sem sölunni gæti fylgt, skiptir máli að upplýsa fólk eins heiðarlega og vel og hægt er. Líka að gera megi ráð fyrir breytingum á störfum ef sú staða er uppi. Þá er bent á mikilvægi þess að upplýsingagjöfin sé virk og í góðum farvegi þá daga og vikur sem taka við eftir að tilkynnt er um sölu fyrirtækisins. 4. Nýir eigendur Oft stíga nýir eigendur snemma inn í upplýsingagjöfina og svara fyrir það hver þeirra hvati var að kaupa fyrirtækið, hvaða væntingar eru um framhaldið og svo framvegis. Þetta er jákvætt en það sem gleymist stundum er að áður en nýir eigendur kynna fyrir starfsfólki breytta framtíðarsýn er mælt með því að nýir eigendur byrji á því að kynna sjálfan sig fyrir starfsfólkinu. Bæði persónulega og á starfsmannafundum. Eins er mælt með því að fyrri eigendur kynni fyrir starfsfólki það traust sem þeir sjálfir bera til nýrra eigenda og hvers vegna þeir telja fyrirtækið í góðum höndum hjá þeim. 5. Tímalínan Til þess að eyða allri óvissu og mögulega að vinda ofan af þeirri spennu sem magnast hefur hjá starfsfólki fyrir kaupin, skiptir máli að fara vel yfir allar tímasetningar á þeim breytingum sem framundan eru. Því betur sem fólk er upplýst um þessa tímalínu, því betur nær fólk að aðlagast þeirri hugsun að breytingar séu framundan. Lykilatriði er til dæmis að upplýsa hvenær fyrri eigendur eða lykilstjórnendur hætta ef svo ber undir, hvenær flutningar verða ef svo ber undir og svo framvegis. Nokkuð mikið til er af góðu efni um hvernig hægt er að undirbúa eða standa að góðri upplýsingagjöf til starfsfólk ef ætlunin er að selja fyrirtæki. Sem dæmi má benda á ágætis grein í Harvard Business Review, sjá HÉR. Þumalputtareglan er þó sú að hvort sem þreifingar ganga eftir eða ekki, sé máttur góðrar upplýsingagjafar ekki vanmetinn.
Góðu ráðin Vinnumarkaður Tengdar fréttir Andlegt ofbeldi á vinnustað felur oft í sér meira skipulag en einelti „Það eru oft óljós mörk á milli andlegs ofbeldis og eineltis á vinnustöðum og þótt færri mál komi upp á vinnustöðum þar sem líkamlegt ofbeldi á sér stað, kemur það þó fyrir,“ segir Helga Lára Haarde, ráðgjafi hjá Attentus. 21. júní 2023 07:01 „Það er ekki lengur asnalegt að vera frumkvöðull“ „Það er mjög áhugavert að velta fyrir sér hversu mikið hefur breyst á þeim fimmtán árum síðan ég byrjaði í þessu nýsköpunarumhverfi. Það er ekki lengur asnalegt að vera frumkvöðull eins og þótti þá. Það þykir ekki lengur furðulegt að feta þessa leið, frekar en að velja að starfa hjá rótgrónu fyrirtæki,“ segir Kristján Freyr Kristjánsson, framkvæmdastjóri 50skills. 26. maí 2023 07:01 Smiður í mannauðsmálin: „Okkur vantar okkar Óla Stef í hjúkrunarfræðina“ „Ég segi fyrir mitt leyti að það hafði ekki tekist í grunnskóla að vekja áhuga minn á einhverju til að stefna á í framhaldsskóla. Ég fór í Verkmenntaskólann á Akureyri eftir grunnskóla en það var eiginlega bara af skyldurækni. Ég vissi ekkert hvað ég var að gera þar,“ segir Daníel Gunnarsson, mannauðssérfræðingur hjá Alvotech. 19. maí 2023 07:00 Fjölskylduvænni vinnustaður: Hvetur fleiri verslanir til að loka klukkan fimm „Kauphegðun fólks hefur breyst svo mikið síðustu árin en opnunartími sérverslana hefur ekki þróast í samræmi,“ segir Úlfar Finsen, eigandi Módern húsgagnaverslunarinnar. „Í dag er mesta traffíkin til okkar á milli klukkan eitt og þrjú á daginn en færri sem koma á milli klukkan fimm og sex.“ 10. maí 2023 07:01 Forstjórinn tók vakt í vöruhúsinu, fagsölumaðurinn gerði blómvendi og vörustjórinn fór á kassa „Forstjórinn og launafulltrúinn tóku til dæmis vakt í vöruhúsinu. Fjármálastjórinn og deildarstjóri UT tóku vakt í pípudeild og einn af fagsölumönnunum okkar sem starfar við að selja stórum verktökum fór í Blómaval og gerði blómvendi!“ nefnir Edda Björk Kristjánsdóttir mannauðstjóri Húsasmiðjunnar sem dæmi um starfaskipti starfsfólks Húsasmiðjunnar, sem stóð fyrir starfaskiptaviku fyrir um mánuði síðan. 26. apríl 2023 07:01 Mest lesið Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Viðskipti innlent Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Viðskipti innlent Opna verslanir í Kringlunni á ný Viðskipti innlent Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendur Kristján ráðinn til Advania Viðskipti innlent Vilja þvinga Google til að selja Chrome Viðskipti erlent Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Viðskipti innlent Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Dæmi: „Tvær konur geta ekki unnið saman því einu sinni áttu þær sama kærasta“ „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Stærðin skiptir ekki máli Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn „Okkur langar til að búa til nýja tegund af bjórmenningu“ „Eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af“ Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ „Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið Eitraður starfsmaður og góð ráð „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ B-týpa sem vill verða A en þarf tíma til að „morgna sig“ Fólki á helst að líða betur eftir vinnudaginn en þegar það mætti Slökkt á asanum: „Hljómar kannski auðveldlega en er það ekki“ Konurnar ofþreyttar en karlmenn vilja meiri frið til að vinna Sjá meira
Andlegt ofbeldi á vinnustað felur oft í sér meira skipulag en einelti „Það eru oft óljós mörk á milli andlegs ofbeldis og eineltis á vinnustöðum og þótt færri mál komi upp á vinnustöðum þar sem líkamlegt ofbeldi á sér stað, kemur það þó fyrir,“ segir Helga Lára Haarde, ráðgjafi hjá Attentus. 21. júní 2023 07:01
„Það er ekki lengur asnalegt að vera frumkvöðull“ „Það er mjög áhugavert að velta fyrir sér hversu mikið hefur breyst á þeim fimmtán árum síðan ég byrjaði í þessu nýsköpunarumhverfi. Það er ekki lengur asnalegt að vera frumkvöðull eins og þótti þá. Það þykir ekki lengur furðulegt að feta þessa leið, frekar en að velja að starfa hjá rótgrónu fyrirtæki,“ segir Kristján Freyr Kristjánsson, framkvæmdastjóri 50skills. 26. maí 2023 07:01
Smiður í mannauðsmálin: „Okkur vantar okkar Óla Stef í hjúkrunarfræðina“ „Ég segi fyrir mitt leyti að það hafði ekki tekist í grunnskóla að vekja áhuga minn á einhverju til að stefna á í framhaldsskóla. Ég fór í Verkmenntaskólann á Akureyri eftir grunnskóla en það var eiginlega bara af skyldurækni. Ég vissi ekkert hvað ég var að gera þar,“ segir Daníel Gunnarsson, mannauðssérfræðingur hjá Alvotech. 19. maí 2023 07:00
Fjölskylduvænni vinnustaður: Hvetur fleiri verslanir til að loka klukkan fimm „Kauphegðun fólks hefur breyst svo mikið síðustu árin en opnunartími sérverslana hefur ekki þróast í samræmi,“ segir Úlfar Finsen, eigandi Módern húsgagnaverslunarinnar. „Í dag er mesta traffíkin til okkar á milli klukkan eitt og þrjú á daginn en færri sem koma á milli klukkan fimm og sex.“ 10. maí 2023 07:01
Forstjórinn tók vakt í vöruhúsinu, fagsölumaðurinn gerði blómvendi og vörustjórinn fór á kassa „Forstjórinn og launafulltrúinn tóku til dæmis vakt í vöruhúsinu. Fjármálastjórinn og deildarstjóri UT tóku vakt í pípudeild og einn af fagsölumönnunum okkar sem starfar við að selja stórum verktökum fór í Blómaval og gerði blómvendi!“ nefnir Edda Björk Kristjánsdóttir mannauðstjóri Húsasmiðjunnar sem dæmi um starfaskipti starfsfólks Húsasmiðjunnar, sem stóð fyrir starfaskiptaviku fyrir um mánuði síðan. 26. apríl 2023 07:01