Laxárdalurinn sýnir sínar bestu hliðar Karl Lúðvíksson skrifar 21. júní 2023 09:48 Robert Novak með flottan urriða úr Laxárdalnum Laxárdalurinn er sífellt að koma sterkari inn eftir að skylduslepping var sett á og veiðin á sama tíma verður sífellt betri.
Ofan á þetta bætist svo að urriðinn bara stækkar og það telst ekkert tiltökumál að urriðum milli 60-70 sm sé landað í hverju holli og 50-60 sm fiskar er bara orðið normið. Þetta var ekki alltaf staðan og það er þess vegna sem veiðimenn sækja sífellt fleiri í að komast að á þessu skemmtilega svæði sem hefur of lengi verið í Skugga svæðisins fyrir ofan sem er Laxá í Mý. Alls ekki skilja það sem svo að ég sé að gera minna úr því. Svæðin eru ólík, bæði mjög skemmtileg en fiskurinn er bara heilt yfir stærri í dalnum. Hjörleifur Steinarsson var að koma úr Laxárdalnum og gerði feykna góða ferð, Hann sendi okkur smá fréttaskot og myndir sem ættu að auka spennuna hjá þeim sem eiga daga þarna í sumar. "Sæll kappi. Smá fréttaskot úr Laxárdalnum, vorum við veiðar í Laxárdalnum 16-19 júní, komum í dalinn í frábæru veðri og tókum við af Caddis bræðrum sem gerðu frábært mót með sín holl. Við vorum með blandað holl, vanir silungsveiðimenn og líka óvanir veiðimenn. Óhætt að segja að Dalurinn hafi skartað sínu fegursta og tekið okkur opnun örmum, allir að setja í fiska og mikið líf á köflum. Hollið endaði í rúmlega 40 fiskum lönduðum, hellingur misst og mikil gleði við völd. Umhverfið í Dalnum er stórkostlegt og ekki spillir þetta frábæra veiðihús heldur, við bókum pottþétt að ári!"
Stangveiði Mest lesið Ný stjórn SVFR og fyrsta konan í varaformanns embættið Veiði Veiðitölur úr Veiðivötnum Veiði Tveir 100 sm laxar á land í Hólsá Veiði Nokkuð jöfn veiði í Eystri Rangá Veiði Veiðimenn þurfa að búa sig vel næstu daga Veiði Ytri Rangá komin yfir 1.000 laxa Veiði Húseyjakvísl gaf vel þrátt fyrir erfið skilyrði Veiði Yfir 1000 laxar gengnir í Elliðaárnar Veiði Síðasta Fræðslukvöld SVFR í vetur á fimmtudaginn Veiði Ennþá vænir sjóbirtingar í Ytri Rangá Veiði