Lífið

„Segjast ætla aldrei að fara í bol aftur“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Diljá Líf segist sjá tölvuverða aukning hefur orðið á því hjá ungum konum á að þær láti gata á sér geirvörturnar.
Diljá Líf segist sjá tölvuverða aukning hefur orðið á því hjá ungum konum á að þær láti gata á sér geirvörturnar. Bleksmiðjan

Töluverð aukning hefur orðið á því hjá ungum konum á að þær láti gata á sér geirvörturnar og virðast ófeimnar við að láta lokkana sjást í gegnum fötin.

„Það er eitthvað kúl við að þetta sjáist í gegnum bolinn,“ segir Diljá Líf Guðmundsdóttir, líkamsgatari hjá Bleksmiðjunni.

„Þetta er klárlega vinsælast hjá konum milli átján ára og þrítugs sem láta í 90 prósent tilfella setja göt í báðar geirvörturnar. Þær koma oft nokkrar saman, þá aðallega til að vera andlegur stuðningur eftir að önnur þeirra hefur fengið sér gat,“ upplýsir Diljá sem sér einnig aukna eftirspurn hjá ungum karlmönnum.

Diljá segir ástæðuna einnig geta tengst óöryggi einstaklinga með innfelldar geirvörtur.

„Sumum hefur þótt óþægilegt að fara úr að ofan og liði óþægilega þegar ég er að þrífa eða merkja svæðið sem á að gata. Strax eftir að lokkurinn er kominn í sé ég að þeim líður betur og segja ætla aldrei að fara í bol aftur,“ segir Diljá og hlær.

Gatanir í geirvörtur hafa aukist hjá öllum kynjum.Bleksmiðjan
„Þetta virðist gefa smá boost í sjálfstraustið sem er svo skemmtilegt að sjá að.“

Rokkarar ekki bara með göt

Að sögn Diljár er eftirspurnin árstíðabundin eftir slíkum götunum, þá helst tengt sumrinu.

Þá sé umræðan opnari og allar týpur samfélagsins farnar að fá sér göt, ekki bara rokkarar eins og staðalmyndin segir til um. „Það er klárlega minna tabú fyrir götunum en áður,“ segir Diljá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.