Lífið

Bíræfin bý­fluga barðist við að dingla bjöllunni

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Býflguan var ansi spennt fyrir dyrabjöllunni og suðaði í langan tíma í kringum hana.
Býflguan var ansi spennt fyrir dyrabjöllunni og suðaði í langan tíma í kringum hana. Aðsent

Fjölskylda í Breiðholtinu vaknaði upp á þriðjudag við óvæntan gest sem lá á húninum. Gesturinn sem hafði beðið lengi fyrir utan reyndist, við nánari athugun, vera suðandi býfluga sem vildi komast inn.

Tryggvi Gunnar Tryggvason, rafeindavirki, náði myndbandi af gestinum reyna að dingla bjöllunni. Sama dag sá hann fréttir af býflugnaher sem hafði tekið yfir götu á Manhattan og fannst það of mikil tilviljunin til að vekja ekki athygli á myndbandinu. Vísir ræddi við Tryggva um þennan uppáþrengjandi morgungest.

Þið vöknuðuð klukkan sjö við býflugu sem dinglaði bjöllunni eða hvað? 

„Hún náði ekki að dingla þó hún hafi reynt það,“ sagði Tryggvi léttur í lund. 

Hér má sjá myndbandið af býflugunni og þar fyrir neðan alla sólarsöguna.

Klippa: Býfluga suðaði á húninum árla morguns

Vildi komast í bakkelsið

Eins og margir eru Tryggvi og fjölskylda hans með myndavélar í kringum húsið sitt ef óvænta gesti ber að garði. Það eru þó ekki bara mennskir gestir sem kíkja í heimsókn.

„Við fáum viðvörun í símann að það sé einhver fyrir utan. Við erum með Ring-myndavélar sem láta vita að það sé einhver staðsettur fyrir utan. Þær sjá hreyfingu og það kemur melding um að það sé einhver persóna fyrir utan,“ sagði Tryggvi.

„Klukkan var varla orðin sjö þannig við vorum að velta fyrir okkur hver ætti erindi svona snemma morguns.“

„Á leiðinni fram í hurð tekur konan mín eftir því að þessi býfluga er að reyna að komast inn og hangir í myndavélinni. Hún vildi endilega koma í kaffi og er að baksa þarna í góðan tíma,“ sagði hann.

Hafa þið orðið mikið vör við býflugur þarna í kring?

„Þær eru dálítið í kringum húsið okkar. Oftast úti í garði, ekki þarna fyrir framan. Þessi vildi hins vegar greinilega komast í sætabrauð,“ sagði Tryggvi.

Þið hafið ekki hleypt býflugunni inn?

„Nei, hún fékk ekki að koma inn, ekki í þetta sinn,“ sagði Tryggvi léttur að lokum.


Tengdar fréttir

Býflugur drápu 63 mörgæsir

Krufning á 63 mörgæsum sem fundust dauðar í Simon's Town, nærri Höfðaborg í Suður-Afríku, hefur leitt í ljós að þær létust af völdum býflugnastunga. Sérfræðingar segja um ólíkindaviðburð að ræða.

17 milljón brjálaðar býflugur

Slökkviliðsmönnum sem komu að fjögurra bíla árekstri í Minnesota brá í brún þegar þeir sáu farþegana sem þeir þurftu að eiga við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.