Skýjað og súld vestantil en hiti að tuttugu stigum fyrir austan Atli Ísleifsson skrifar 30. maí 2023 07:07 Reiknað er með hiti á vestanverðu landinu verði á bilinu sjö til tólf stig. Vísir/Vilhelm Það hafa verið hvassir vindstrengir á norðan- og austanverðu landinu í nótt, en í dag mun snúast í minnkandi vestlæga átt, átta til fimmtán metrar á sekúndu.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði skýjað að mestu á vesturhluta landsins og dálítil súld fram eftir degi, og þar verði hiti á bilinu sjö til tólf stig. Á austanverðu landinu megi hins vegar búast við björtu veðri og hita að tuttugu stigum þar sem best lætur. „Vestlæg eða breytileg átt á morgun, gola, kaldi eða strekkingur. Það verður áfram bjart að mestu austanlands, annars skýjað með köflum, og eftir hádegi má búast við þokusúld við vesturströndina. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast á Suðausturlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Vestlæg eða breytileg átt 5-13 m/s. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt, en líkur á súld vestast. Víða bjartviðri um landið austanvert. Hiti 8 til 19 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á fimmtudag, föstudag og laugardag: Suðvestan og vestan 5-13, hvassast norðvestantil. Skýjað á vestanverðu landinu og súld eða dálítil rigning með köflum, hiti 8 til 13 stig. Víða léttskýjað á austurhelmingi landsins með 11 til 20 stiga hita, en líkur á þokulofti við ströndina. Á sunnudag (sjómannadagurinn): Sunnan og suðvestan 5-10 og lítilsháttar rigning, en bjart með köflum og þurrt um landið austanvert. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Suðvestlæg átt og rigning með köflum, en yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert.
Veður Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira