Play bætir við tveimur áfangastöðum næsta vetur Atli Ísleifsson skrifar 4. maí 2023 10:12 Fyrsta flugið til Fuerteventura verður í desember næstkomandi og til Verona í janúar á næsta ári. Vísir/Vilhelm Flugfélagið Play hefur hafið sölu á áætlunarferðum til Verona á Ítalíu og Fuerteventura á Kanaríeyjum.
Í tilkynningu frá flugfélaginu segir að fyrsta flugið til Verona verði 20. janúar árið 2024 en flogið verði einu sinni í viku á laugardögum til 24. febrúar. Fyrsta flugið til Fuerteventura verður 20. desember næstkomandi og verður flogið til 10. apríl. Boðið verður upp á flug einu sinni í viku á tímabilinu. „Fuerteventura er sannkölluð paradísareyja en hún er líklega frægust fyrir æðislegar öldur, gullfallegar strendur og fullkomnar aðstæður fyrir brimbrettafólk. Þá þykir loftslag eyjunnar tilvalið fyrir alls kyns útivist og íþróttir en þar má sannarlega njóta lífsins við hjólreiðar, göngu og golf svo fátt eitt sé nefnt. Áttundi áfangastaðurinn á Spáni Verona er að sjálfsögðu þekktust fyrir rómantískustu svalir bókmenntasögunnar en hún státar einnig af stórfenglegri borgarfegurð. Frá borginni er stutt að fara í úrval vinsælla og frægra skíðasvæða í Ölpunum þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt skíðafæri. Fuerteventura er áttundi áfangastaður PLAY á Spáni en fyrir flýgur PLAY til Alicante, Barcelona, Las Palmas, Madríd, Malaga, Mallorca og Tenerife. PLAY flýgur einnig til Porto og Lissabon í Portúgal. Verona er þriðji áfangastaður PLAY á Ítalíu en félagið er einnig með áætlunarferðir til Bologna og Feneyja,“ segir í tilkynningunni.
Play Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur Spánn Ítalía Ferðalög Kanaríeyjar Mest lesið Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Jólakjötið töluvert dýrara í ár Neytendur Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Viðskipti innlent Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Skipta dekkin máli? Samstarf Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Sjá meira