Innlent

Vélar­rýmið fylltist af gufu

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Annað björgunarskip var kallað út vegna óhappsins því hálftíma sigling var til hafnar.
Annað björgunarskip var kallað út vegna óhappsins því hálftíma sigling var til hafnar. Landsbjörg

Vélarrúm björgunarskipsins Hannesar Þ. Hafstein fylltist af gufu þegar kælirör sprakk í æfingasiglingu út frá Sandgerði. Ekkert björgunarskip verður til taks í Sandgerði á næstunni.

Slysavarnafélagið Landsbjörg greinir frá þessu. Skipið fór fyrr í dag í æfingasiglingu út frá Sandgerði og skeði óhappið um klukkan 13. Kælirör fyrir aðra aðalvél skipsins sprakk með þeim afleiðingum að vélarrúm fylltist af gufu. Fór brunavarnarkerfi skipsins í gang í kjölfarið.

„Áhöfnin brást við samkvæmt fyrir fram ákveðnu verklagi, drepið var á báðum vélum og öllum rýmum lokað,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. „Þegar ljóst var að enginn eldur var um borð var vélarrúmið reykræst. Þá kom ástæðan í ljós, sprungið kælivatnsrör.“

Skipið var smíðað árið 1988 og var lengi á Siglufirði.Landsbjörg

Var hin vél skipsins gangsett og siglt á því vélarafli til hafnar í Sandgerði, um hálftíma leið. Björgunarskipið Oddur V. Gíslason, var kallað út frá Grindavík en ekki reyndist þörf á aðstoðinni.

Skert viðbragð á Suðurnesjum

Jón Þór segir að Sandgerðingar hefðu nýlega fengið björgunarskipið og að unnið hafi verið að því að standsetja það fyrir strandveiðitímabilið sem hefst á morgun.

„Ekki er ljóst á þessari stundu hversu mikil og kostnaðarsöm viðgerðin á Hannesi verður, en þó ljóst að ekkert björgunarskip verður til taks í Sandgerði á næstunni, og viðbragð því skert á Suðurnesjum,“ segir Jón Þór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×