Brighton sótti þrjú stig á Brúnna og Hodgson með þriðja sigurinn í röð Smári Jökull Jónsson skrifar 15. apríl 2023 16:03 Leikmenn Brighton fagna með stuðningsmönnum sem fylgdu liðinu á Stamford Bridge í dag. Vísir/Getty Brighton gerði góða ferð til Lundúna í dag þar sem liðið vann 2-1 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Crystal Palace vann sinn þriðja sigur í röð undir stjórn Roy Hodgson.
Það hefur ekki verið mikið sældarlíf hjá Frank Lampard síðan hann tók við liði Chelsea á nýjan leik á dögunum. Liðið tapaði 2-0 fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni í vikunni og beið lægri hlut gegn Brighton á heimavelli í dag. Chelsea komst þó yfir í leiknum í dag með marki frá Conor Gallagher. Danny Welbeck jafnaði fyrir hlé en stórskostlega mark frá Julio Enciso tryggði Brighton stigin þrjú. Þetta er sjötti leikur Chelsea í röð án sigurs og þriðji tapleikurinn í röð undir stjórn Frank Lampard. Roy Hodgson brosir breitt þessa dagana.Vísir/Getty Það gengur hins vegar betur hjá öðrum endurkomuþjálfara. Roy Hodgson tók við Crystal Palace í lok marsmánauðar og í dag vann liðið sinn þriðja leik í röð eftir að hann tók við. Eberechi Eze skoraði bæði mörk Palace í 2-0 sigri á útivelli gegn Southampton og liðið er nú komið í nokkuð þægilega fjarlægð frá fallbaráttunni. Syrtir í álinn hjá Everton Það gengur hvorki né rekur hjá Everton og liðið tapaði í dag á heimavelli gegn Fulham. Harrison Reed kom Fulham yfir á 22. mínútu eftir sendingu Daniel James en Dwight McNeil jafnaði fyrir hlé. Í síðari hálfleik skoruðu þeir Harry Wilson og áðurnefndur James tvö mörk fyrir Fulham sem vann 3-1 sigur á Goodison Park. Þá vann Wolves gríðarlega mikilvægan sigur á Brentford á heimavelli sínum. Diego Costa og Hwang Hee-Chan skoruðu mörk liðsins í sitthvorum hálfleiknum og tryggðu 2-0 sigur. Wolves er nú sjö stigum frá fallsæti eftir tvo sigra í röð.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Sjá meira