Seðlabankastjóri segir þörf á betri upplýsingum um gjaldeyrismarkaðinn
![Ásgeir Jónsson seðlabankstjóri segir ekki æskilegt að fjárfestar og fyrirtæki séu í þeirri stöðu að þurfa oft að taka ákvarðanir um gjaldeyrisviðskipti sem grundvallast á takmörkuðum upplýsingum um markaðinn og verðmyndun á honum eftir að hafa fengið símtöl frá gjaldeyrismiðlurum bankanna.](https://www.visir.is/i/AEADE4F520A5FB07D23982F83680F1E002A78EEBFF6AD5705D4632BA5B618444_713x0.jpg)
Unnið er að því hjá Seðlabankanum að reyna afla ítarlegri og betri upplýsinga um heildarviðskipti á gjaldeyrismarkaði, að sögn seðlabankastjóra, og viðurkennir að bankinn hafi „ekki nægjanlega“ góða yfirsýn yfir þann markað. Framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs líkir gjaldeyrispörun innan viðskiptabankanna við „stærstu skuggabankastarfsemi landsins“ og segir umfang lífeyrissjóða á gjaldeyrismarkaði minna en af er látið.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/795B9BC9D3580DF1FC9CC3A69EFDC37944556F72B5FB28835AB75E38E69BF380_308x200.jpg)
Ósk um hlé á gjaldeyriskaupum lífeyrissjóða kom peningastefnunefnd á óvart
Sú ákvörðun Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra í upphafi faraldursins árið 2020 að beina því til íslensku lífeyrissjóðanna um að gera tímabundið hlé á gjaldeyriskaupum sínum kom öðrum nefndarmönnum peningastefnunefndar Seðlabankans „á óvart“ að sögn erlendra sérfræðinga sem hafa gert ítarlega úttekt á starfsemi bankans.
![](https://www.visir.is/i/48CE6BE599D38CFC499C55D4729503EF7DB24378272E561F94BDA01FB5CB3499_308x200.jpg)
Lífeyrissjóðirnir keyptu gjaldeyri fyrir meira en tólf milljarða í desember
Íslensku lífeyrissjóðirnir juku verulega við gjaldeyriskaup sín undir árslok 2022 og keyptu að jafnaði erlendan gjaldeyri fyrir um 11,4 milljarða í hverjum mánuði á síðustu fjórum mánuðum ársins. Niðurstaðan var að hrein gjaldeyriskaup sjóðanna jukust um tæplega 100 prósent frá fyrra ári en gengi krónunnar lækkað talsvert á síðari árshelmingi 2022. Útlit er fyrir enn meiri kaup lífeyrissjóðanna á gjaldeyri á þessu ári.