Lífið

Klæddist hanska vegna fimm­tán ára gamalla á­verka

Bjarki Sigurðsson skrifar
Morgan Freeman og Margot Robbie á Óskarsverðlaununum í nótt.
Morgan Freeman og Margot Robbie á Óskarsverðlaununum í nótt. Getty/Myung J. Chun

Leikarinn Morgan Freeman klæddist þrýstihanska á sviðinu á Óskarsverðlaununum í nótt. Hanskann notar hann vegna bílslyss sem hann lenti í fyrir fimmtán árum síðan.

Það vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum þegar Morgan Freeman og Margot Robbie gengu á sviðið á Óskarsverðlaununum í nótt. Freeman klæddist svörtum hanska á vinstri hönd þegar hann og Robbie ræddu um kvikmyndaframleiðandann Warner Bros. sem fangar nú 100 ára afmæli. 

Að nota hanskann var þó ekki nein tískuákvörðun hjá Freeman heldur notar hann hanskann til að halda blóðflæði í höndinni. Árið 2008 lenti hann í alvarlegu bílslysi og hlaut taugaskaða í vinstri höndinni. 

Enginn venjulegur hanski á hönd Freeman.Getty/Rich Polk

Freeman var heppinn að lifa slysið af og að einu varanlegu meiðslin væru í höndinni. Hann braut á sér vinstri öxlina, höndina og olnbogann. Viðbragðsaðilar þurftu að klippa hann úr bíl sínum. 

Hanskinn virkar þannig að hann þrýstir örlítið á æðarnar í höndinni svo Freeman þurfi ekki að hreyfa hana jafn mikið. Þannig heldur hann blóðflæði gangandi um höndina og þarf ekki að hafa áhyggjur af því að hún bólgni upp. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.