Gagnrýnin hugsun er eina vopnið gegn heimsendaspámönnunum Þorsteinn Siglaugsson skrifar 10. mars 2023 12:31 „Forsenda illskunnar er sú að við hugsum ekki. Illskan er óháð hugsuninni, sem marka má af því að þegar hugsunin reynir að skilja illskuna og átta sig á þeim forsendum og meginreglum sem hún sprettur af, þá upplifir hún vanmátt sinn, því hún finnur ekkert. Í þessu felst lágkúra illskunnar.“ Hannah Arendt, Eichmann in Jerusalem Um daginn átti ég spjall við einn þeirra sem enn trúa því að hin fordæmalausa ofsahræðsla sem greip um sig vegna kórónuveirunnar hafi verið réttlætanleg. Hann spurði mig vitanlega um samsæri og um „eðlufólk“, hvort ég héldi að tölur um dánartíðni víðsvegar að úr heiminum væru falsaðar, og hvort það væri ekki kominn tími til að ég og aðrir efasemdarmenn slökuðum á í „heimsendaspám“ okkar, og vísaði þar í áhyggjur af tjáningarfrelsi og persónulegu frelsi. Eðlufólkið og The Economist Það er ekkert nýtt fyrir mér að vera kallaður samsæriskenningasmiður og ég hef oft fengið að heyra að ég trúi á gamla góða eðlufólkið. Spurningunni um dánartíðnina fylgdi viðhengi, línurit með samanburði á dánartíðni í Ástralíu og Nýja Sjálandi annars vegar og í Svíþjóð og Bandaríkjunum hins vegar; þá „góðu“ og þá „vondu“, bersýnilega, og tímabilið auðvitað vandlega valið. Ég er viss um að þetta átti að sýna mér hversu frábærlega fyrrnefndu löndunum tveimur hefði tekist að fást við drepsóttina ógurlegu. Ég tók hins vegar ekki eftir línuritinu fyrr en eftir að ég spurði viðmælandann hvort hann væri að vísa í fullyrðingarThe Economistum að dánartíðni væri í raun þrefalt hærri en opinber gögn sýndu, þegar hann talaði um staðhæfingar um röng gögn, en það er eina dæmið um slíkt sem ég man eftir að hafi vakið verulega athygli. Ég hef ekki enn fengið svar við þessari spurningu. Það var hins vegar spurningin um „heimsendaspárnar“ sem mér þótti áhugaverðust. Sérstaklega með hliðsjón af línuritinu, sem greinilega var ætlað að sýna að viðeigandi viðbrögð við öndunarfæraveiru væru þau að loka fólk inni til eilífðarnóns. Það blasti sumsé við hvað ég var að fást við þennan laugardagsmorgun; það var heimsendaspámaður, og sannarlega enginn aukvisi á því sviði. Veiruhræðslan og heimsendahugarfarið Heimsendahugarfarið er ekkert nýtt. Eins og Toby Young fjallaði um í erindi sínu á fundi Málfrelsis í janúar, þá byggir þetta hugarfar á tilhneigingu okkar til að láta spár um hræðilega atburði, sem vissulega væru mögulegir en þó afar ólíklegir, trylla okkur af ótta. Viðbrögðin við kórónuveirunni voru afleiðing þessa hugarfars, hugarfars sem virðist ná sífellt sterkari fótfestu. Það er niðurstaða mín að meginástæðan fyrir þessu sé sú hvernig stöðugt hefur fjarað undan gagnrýninni hugsun á undanförnum árum og áratugum. Þetta er ástæðan fyrir því að ég hef nú hleypt af stokkunum nýju bloggi á Substack, The Edge of Reason, sem hefur það markmið að hjálpa fólki að skerpa hæfni sína í gagnrýninni hugsun. Þetta er lítið skref, en vonandi í rétta átt. Þegar sífelldar heimsendaspár dynja á okkur, tiltölulega vægar veirupestir eru magnaðar upp í drepsóttir, okkur er sagt að heimsendir verði eftir átta ár, og þar fram eftir götunum, og fjölmiðlar og stjórnvöld slá taktinn alveg samtaka, þá er auðvelt að hrífast með og verða áróðrinum að bráð. Þetta gerðist þegar óttinn við kórónuveiruna tók öll völd. Og nú eru þrjú ár liðin síðan tekið var til við að loka skólum, setja á samkomubönn, banna ferðalög, þvinga fólk til grímunotkunar, allt ráðstafanir sem ekkertgagn var að, en ollu aðeins skaða. Nokkru síðar var tekið að dæla í fólk “bóluefnum” sem eiga í raun ekkert skylt við bóluefni, því þau virðast auka smit í stað þess að draga úr þeim. Allt gerðist þetta í krafti ótta, sem drifinn var áfram af gegndarlausum áróðri, sem almenningur hefur enn ekki jafnað sig á. Hugsunarleysið leiðir af sér hörmungar Lítill minnihluti fólks lét hins vegar áróðurinn ekki svipta sig ráði og rænu. Það var fólkið sem lét sér ekki nægja fyrirsagnir dagblaðanna og sjónvarpsfréttirnar, heldur leitaðist við að afla sér upplýsinga sjálft, kanna sannleiksgildi og röksemdir, spyrja spurninga um það sem sett var fram í fjölmiðlum þegar ekki fór saman hljóð og mynd, skoðaði tölfræðigögn og lagðist jafnvel sumt í lestur vísindarannsókna. Með öðrum orðum, fólk sem beitti gagnrýninni hugsun. Nú, þegar rykið er loks að setjast eftir hræðslufaraldurinn vegna kórónuveirunnar, þremur árum eftir að hann hófst, sjást afleiðingarnar af heimsendahugarfarinu. Við sjáum þær í verðbólgu og gegndarlausri skuldsetningu ríkja sem stöðvuðu efnahagslíf sitt í vanmáttugri tilraun til að stöðva dreifingu veirusjúkdóms. Við sjáum þær í óafturkræfu tjóni barna sem urðu lokunum skóla að bráð. Við sjáum þær í heilsufarstjóni, í hungurdauða milljóna, og síðast en ekki síst í vantrausti gagnvart stjórnvöldum sem lugu og sköðuðu almenning vitandi vits og þögguðu gagnrýni markvisst niður. Það er í þessu ljósi sem við hljótum að skoða orð Hönnu Arendt um lágkúru illskunnar; hvernig hugsunarleysið leiðir af sér hörmungar. Gagnrýnin hugsun er eina vopn okkar og við verðum að beita því Heimsmynd hræðsluáróðursmeistaranna er nú tekin að molna. Þeir eru í síauknum mæli hafðir að háði og spotti. Áróður þeirra var tilefnislaus og æ fleiri gera sér nú grein fyrir því. Og snákaolían þeirra varð síst til að bæta ástandið. Það er kominn tími til að kalla þá réttu nafni; heimsendaspámenn, snákaolíusala, því það er það sem þeir eru í raun og veru. Við verðum að líta á þá í réttu ljósi, það er sjálfsagt að hæðast að þeim og við eigum ekki að hika við það. En það merkir ekki að við getum sofnað á verðinum. Því heimsendaspámenn eru hættulegt fólk. Hver svo sem áform þeirra sjálfra kunna að vera ryðja þeir brautina fyrir valdasjúka einstaklinga sem ávallt leynast handan við hornið og bíða eftir tækifæri til að nýta sér ótta okkar og hrifsa völdin. Óttafaraldurinn vegna kórónuveirunnar var ekki sá fyrsti og verður örugglega ekki sá síðasti. En hörmungarnar sem hann hefur haft í för með sér eru líklega verstu afleiðingar slíks faraldurs í sögunni. Ef ekki verður gripið í taumana verða þær enn verri næst. Eina vopnið sem við höfum til að berjast við heimsendaspámenn og snákaolíusala er gagnrýnin hugsun; skýr rökhugsun, sífelld staðreyndaleit, sívakandi efi. Og það nægir ekki að örlítill minnihluti hafi gagnrýna hugsun á valdi sínu. Fjöldinn þarf að vera nægur til að hægt sé að stöðva áróðurinn í fæðingu. Það er mikilvægasta verkefni okkar nú að stuðla að þessu. Höfundur er formaður Málfrelsis – samtaka um frjálsa og opna umræðu, lýðræði og mannréttindi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Þorsteinn Siglaugsson Mest lesið Við ákærum – hver sveik strandveiðisjómenn? Kjartan Páll Sveinsson Skoðun Af hverju varð heimsókn framkvæmdastjóra ESB að NATO-fundi? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þið voruð í partýinu líka! Gísli Sigurður Gunnlaugsson Skoðun Veimiltítustjórn og tugþúsundir dáinna barna Viðar Hreinsson Skoðun Swuayda blæðir: Hróp sem heimurinn heyrir ekki Mouna Nasr Skoðun Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Opið bréf til fullorðna fólksins Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir Skoðun Fjárhagslegt virði vörumerkja Elías Larsen Skoðun Óður til hneykslunar Arnar Sveinn Geirsson Skoðun Bragðefni eru ekki vandamálið - Bann við þeim myndi skaða lýðheilsu Abdullah Shihab Wahid Skoðun Skoðun Skoðun Er hægt að læra af draumum? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Afstæði Ábyrgðar Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Fjárhagslegt virði vörumerkja Elías Larsen skrifar Skoðun Við ákærum – hver sveik strandveiðisjómenn? Kjartan Páll Sveinsson skrifar Skoðun Þið voruð í partýinu líka! Gísli Sigurður Gunnlaugsson skrifar Skoðun Af hverju varð heimsókn framkvæmdastjóra ESB að NATO-fundi? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Veimiltítustjórn og tugþúsundir dáinna barna Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Bragðefni eru ekki vandamálið - Bann við þeim myndi skaða lýðheilsu Abdullah Shihab Wahid skrifar Skoðun Swuayda blæðir: Hróp sem heimurinn heyrir ekki Mouna Nasr skrifar Skoðun Skattar fyrst, svo allt hitt – og hagræðingin sem gleymdist Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Áfangasigur í baráttunni við hernaðinn gegn heimkynnum villta laxins Ingólfur Ásgeirsson,Árni Baldursson skrifar Skoðun Þetta er allt hinum að kenna! Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Þjóðþrifamálin sem stjórnarandstaðan fórnaði á altari útgerðanna Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Sleppir ekki takinu svo auðveldlega aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fullorðna fólksins Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir skrifar Skoðun Vill Sjálfstæðisflokkurinn láta taka sig alvarlega? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Undirbúum börnin fyrir skólann með hjálp gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Enginn skilinn eftir á götunni Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hví borgar útgerðin – ekki malarnáman? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vantraust Flokks fólksins á Viðreisn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun 48 daga blekking: Loforð sem leiðir til lögbrota? Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald skrifar Skoðun Málþóf á kostnað ungs fólks Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Við krefjumst sanngirni og aðgerð strax Dagmar Valsdóttir skrifar Sjá meira
„
Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Skoðun Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Bragðefni eru ekki vandamálið - Bann við þeim myndi skaða lýðheilsu Abdullah Shihab Wahid skrifar
Skoðun Skattar fyrst, svo allt hitt – og hagræðingin sem gleymdist Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Áfangasigur í baráttunni við hernaðinn gegn heimkynnum villta laxins Ingólfur Ásgeirsson,Árni Baldursson skrifar
Skoðun Þjóðþrifamálin sem stjórnarandstaðan fórnaði á altari útgerðanna Heimir Már Pétursson skrifar
Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald skrifar
Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar
Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir Skoðun