Vefsalan opnar í dag hjá SVFR Karl Lúðvíksson skrifar 3. mars 2023 11:41 95 sm lax úr Elliðaánum Nú er forúthlutun til félaga innan Stangaveiðifélags Reykjavíkur lokið og utan félagsmenn og konur geta nú skoðað hvað er í boði.
Samkvæmt frétt hjá SVFR er eitthvað laust í Langá, Haukadalsá, Sandá, Flekkudalsá, Gljúfurá, Miðá og silungsveiði í Flókadalsá í Fljótum en það líklegt að það verði slegist um Haukadalsá, Sandá og Gljúfurá en þær hafa oftar en ekki verið löngu uppseldar til félagsmanna. Umsóknir í Elliðaárnar hafa líklega aldrei verið fleiri til félagsmanna svo það verða líklega afar fáir ef einhverjir dagar í árnar sem möguleiki verður að bóka utan félags. Það styttist síðan hratt í fyrsta veiðidag sumarsins en veiði hefst að venju 1. apríl og þá liggur straumurinn í vorveiðina og þá sækja veiðimenn í sjóbirting. Vötnin opna síðan eitt af öðrum og er vatnaveiði yfirleitt komin í góðan gang strax í byrjun maí.
Stangveiði Mest lesið Þrjár nauðsynlegar laxaflugur í boxið Veiði 98 laxar komnir úr Elliðaánum Veiði Rjúpnaveiðin hefst 1. nóvember Veiði Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði Meðalár í Andakílsá Veiði Frábær feðgaferð í Miðfjarðará Veiði Settu í sjö laxa við opnun Stóru Laxár Veiði Brúará er komin í gang Veiði Frábær skilyrði og góð veiði í Kjósinni. Mikið af laxi í Langá Veiði Fjórtán punda urriði í Galtalæk Veiði