Potter óttast um starfið: „Get ekki treyst á stuðning þeirra endalaust“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. febrúar 2023 11:30 Graham Potter situr í heitu sæti. getty/Robbie Jay Barratt Graham Potter, knattspyrnustjóri Chelsea, virðist vera farinn að óttast um starf sitt, allavega ef marka má ummæli hans eftir tapið fyrir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Chelsea tapaði Lundúnaslagnum gegn Spurs með tveimur mörkum gegn engu og hefur aðeins unnið tvo af síðustu fimmtán leikjum sínum í öllum keppnum. Sóknarleikur Chelsea hefur verið sérstaklega slakur en ekkert lið í ensku úrvalsdeildinni hefur skorað færri mörk síðan í nóvember. Potter er meðvitaður um að dagar hans hjá Chelsea gætu senn verið taldir. „Ef úrslitin eru ekki nógu góð, eins og þau eru núna, get ég ekki treyst á stuðninginn eigandanna endalaust. Það er ljóst,“ sagði Potter eftir leikinn í gær. „Ég tek fulla ábyrgð á þessum úrslitum og þau eru ekki nógu góð fyrir Chelsea. Við viljum bæta þau. Ég þarf að halda áfram, vinna með liðinu að reyna að breyta hlutunum okkur í hag. Leikmennirnir eru sárir. Þetta er erfitt fyrir okkur.“ Chelsea er í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fjórtán stigum frá Meistaradeildarsæti. Þá tapaði Chelsea fyrri leiknum gegn Borussia Dortmund, 1-0, í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Enski boltinn Mest lesið Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Fótbolti Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Fótbolti Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Körfubolti Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Fótbolti Fleiri fréttir Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Sjá meira