Fengu Cody Gakpo til að lýsa fyrsta markinu sínu fyrir Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. febrúar 2023 09:30 Cody Gakpo fagnar fyrsta marki sínu fyrir Liverpool og það sást vel hvað hann var feginn. Getty/Andrew Powell Cody Gakpo tókst loksins að opna markareikning sinn hjá Liverpool í sigrinum í derby-slagnum á móti Everton á mánudagskvöldið.
Gakpo skoraði seinna mark Liverpool í 2-0 sigri en þetta var fyrsti deildarsigur liðsins á nýju ári. Það voru miklar væntingar gerðar til þessa 23 ára gamla Hollendings eftir góða frammistöðu á HM í Katar þar sem hann skoraði þrívegis. View this post on Instagram A post shared by Liverpool Football Club (@liverpoolfc) Þetta var hans sjöundi leikur fyrir félagið síðan að Liverpool keypti hann frá PSV Eindhoven fyrir á bilinu 40 til 50 milljónir evra. Gakpo skoraði 13 mörk í 24 leikjum með PSV fyrir áramót en þurfti að bíða í 546 mínútur eftir sínu fyrsta marki í Liverpool búningnum. Gakpo tókst heldur ekki að skora í tveimur síðustu leikjum sínum með hollenska landsliðinu á HM og hafði því verið markalaust í átta leikjum í röð. Þetta var því langþráð mark hjá stráknum. Samfélagsmiðlafólkið hjá Liverpool fékk hann því að lýsa fyrsta markinu sínu fyrir Liverpool og má sjá þessa lýsingu hér fyrir neðan. Markið skoraði Gakpo eftir flotta sókn og stoðsendingu frá Trent Alexander-Arnold sem fær hana samt ekki skráða hjá ensku úrvalsdeildinni. View this post on Instagram A post shared by Liverpool Football Club (@liverpoolfc)
Enski boltinn Mest lesið Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Fótbolti Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Fótbolti Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Fótbolti Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Körfubolti Fleiri fréttir Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Sjá meira