Allhvöss sunnanátt, rigning og má reikna með vatnselg á götum Atli Ísleifsson skrifar 10. febrúar 2023 07:10 Reikna má með að stórir pollar gætu myndast á götum í þéttbýli í dag. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir allhvassri sunnanátt með rigningu eða slyddu um sunnan- og vestanvert landið í dag, en slyddu eða snjókomu fyrir norðan fram eftir degi.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að mögulega gæti orðið vatnselgur á götum núna í morgunsárið þar sem hlýni með rigningu, einkum í þéttbýli. Í kvöld hvessir frekar og gengur í suðvestan hvassviðri eða storm á norðanverðu landinu og eru gular viðvaranir í gildi á Vestfjörðun, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Suðausturlandi og Miðhálendi. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan „Á morgun heldur sunnan hvassviðri eða stormur áfram en með talsverðri rigningu í fyrstu. Þegar líður á daginn kólnar og bætir í vindinn, en eftir hádegi stefnir í suðvestan storm eða rok með slydduéljum eða éljum og eru einnig gular viðvaranir í gildi vegna þess. Fólk er hvatt til að fylgjast með þróun veðurspáa fyrir helgina þar sem áframhaldandi lægðagangur ætlar lítið að gefa eftir,“ segir í tilkynningunni. Gulu viðvaranirnar eru í gildi fyrir land allt frá klukkan 16 á morgun til miðnættis. Von sé á suðvestan stormur eða rok, 20 til 28 metrum á sekúndu, þar sem hvassast verður í vindstrengjum við fjöll um norðvestanvert landið. „Skúrir og síðar él, en úrkomulítið norðaustantil, og því víða takmarkað skyggni í skafrenning eða éljum. Samgöngutruflanir eru líklegar og hætt við foktjóni.“ Gular viðvaranir taka gildi á landinu öllu síðdegis á morgun.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Sunnan 18-25 m/s með rigningu, talsverð rigning sunnantil, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 4 til 9 stig. Snýst í suðvestan storm síðdegis með slydduéljum eða éljum og kólnandi veðri. Á sunnudag: Suðlæg átt 5-10 m/s og él, en þurrt um austanvert landið. Hiti kringum frostmark. Vaxandi suðaustanátt með slyddu eða rigningu sunnantil um kvöldið og hlýnar. Á mánudag: Hvöss sunnanátt með rigningu, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Hiti 5 til 10 stig. Á þriðjudag: Snýst í suðvestanátt með skúrum og síðar éljum sunnan- og vestanlands, en þurrt um landið norðaustanvert. Kólnandi. Á miðvikudag: Suðvestlæg átt með éljum, en þurrt norðaustantil. Hiti um frostmark. Á fimmtudag: Útlit fyrir áframhaldandi suðvestlæga átt með skúrum eða éljum og hiti í kringum frostmark.
Veður Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira