Lífið

Beyoncé kom, sá og sigraði á Gram­my-verð­launahátíðinni

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Beyoncé mætti seint en kom í tæka tíð til að taka á móti fjórðu Grammy-verðlaunum kvöldsins.
Beyoncé mætti seint en kom í tæka tíð til að taka á móti fjórðu Grammy-verðlaunum kvöldsins. Getty/Michael Kovac

Tónlistarkonan Beyoncé komst í sögubækurnar í nótt þegar hún varð sá einstaklingur sem hefur hlotið flest Grammy-verðlaun. Beyoncé hlaut fjögur verðlaun á Grammy-verðlaunahátíðinni og á nú hvorki meira né minna en 32 grammafóngripi.

Beyoncé þótti eiga besta R&B lag ársins, bestu dans/raftónlistarupptökuna, bestu dans/raftónlistarplötuna og bestu hefðbundnu R&B frammistöðuna. Harry Styles hlaut stærstu verðlaun kvöldsins, bestu plötu fyrir Harry's House en Bonnie Raitt hlaut verðlaunin fyrir besta lagið, Just Like That.

Meðal annarra sigurvegara kvöldsins voru Adele, sem hlaut verðlaun fyrir popplagið Easy on Me, Kendrick Lamar, sem hlaut meðal annars verðalaun fyrir besta rapplagið og bestu rappplötuna, og Lizzo, sem hlaut verðlaun fyrir lagið About Damn Time.

Kim Petras varð önnur trans konan til að hljóta Grammy-verðlaun, fyrir dúettinn sinn með Sam Smith, Unholy. Í þakkarræðu sinni minntist hún sérstaklega þeirra trans listamanna sem hefðu rutt veginn fyrir hana.

Meðal annarra sigurvegara var leikkonan Viola Davis, sem var verðlaunuð fyrir hljóðbókarútgáfu æviminninga sinna, Finding Me. Með sigrinum varð Davis átjánda manneskjan til að öðlast EGOT; það er að segja að hafa unnið til Emmy-, Grammy-, Óskars- og Tony-verðlauna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.