Þetta reddast ekki Steinunn Bergmann og Þóra Leósdóttir skrifa 2. febrúar 2023 10:31 Heilbrigðisstéttir hafa varað við því árum saman að stærsta auðlind heilbrigðiskerfisins, starfsfólkið, fari þverrandi. Talað hefur verið fyrir daufum eyrum og nýafstaðinn heimsfaraldur hefur furðu litlu breytt hvað það varðar. Þá er mikilvægt að minna á að það er ekki heilbrigðiskerfinu sjálfu að þakka hversu vel Ísland kom út úr faraldrinum heldur fólkinu sem þar starfar. Fyrir okkur sem þekkjum til afhjúpaði heimsfaraldurinn hversu vanfjármagnað þetta mikilvæga kerfi er, en sýndi líka glögglega hversu gott fagfólk vinnur við heilbrigðis- og félagsþjónustu í landinu. Staðreyndin er að mönnunar- og nýliðunarvandi er og hefur verið gríðarlegt vandamál. Það er almennt viðurkennt að bæta þurfi laun og starfsumhverfi heilbrigðisstarfsfólks til muna til að fá fleiri til starfa nú og til framtíðar. Velferðarkreppa Vandinn er margþættur og kerfisbundinn. Íslendingar verja minna fé í heilbrigðismál en hin Norðurlöndin og raunar minna en OECD ríkin gerðu að meðaltali árið 2019. Það eru ýmsar ástæður fyrir því. Til að mynda eru fleiri í hlutastörfum hér á landi auk þess sem skortur er á sérfræðingum í ákveðnum heilbrigðisgreinum. Heilbrigðiskerfið var komið í krísu fyrir heimsfaraldurinn hvað varðar mönnun en það vandamál hefur einungis vaxið með álaginu sem farsóttinni fylgdi. Skortur á heilbrigðisstarfsfólki mun aukast á næstu árum og því sjáum við ekki fyrir endann á velferðarkreppunni. Í fyrra voru íbúar landsins ríflega 368 þúsund en samkvæmt miðspá Hagstofu Íslands 2021 verða íbúarnir 429 þúsund árið 2035, sem samsvarar 16,4% fólksfjölgun. Ef hlutfall heilbrigðisstarfsfólks á móti íbúum ætti að haldast það sama þyrfti heilbrigðisstarfsfólki að fjölga um sama hlutfall. Á hinn bóginn er aldurssamsetning þjóðarinnar að breytast. Hlutfall 65 ára og eldri mun fara úr 14,7% af mannfjölda 2021 í 18,4% árið 2035, sem er fjölgun um 25 þúsund manns. Þetta er einmitt sá aldurshópur sem þarf hvað mest á heilbrigðis- og félagsþjónustu að halda. Skakkt virðismat Óleiðréttur kynbundinn launamunur hér á landi mældist 13,9% árið 2020. Munur á atvinnutekjum karla og kvenna var heilt yfir 25,5% sama ár samkvæmt Hagstofu Íslands. Ástæðuna fyrir launamun kynjanna má meðal annars finna í kynskiptum vinnumarkaði og skökku virðismati á störfum kvenna miðað við hefðbundin karlastörf. BHM er bandalag 27 aðildarfélaga. Átta þeirra eru fag- og stéttarfélög háskólamenntaðra sérfræðinga á heilbrigðissviði. Þessar fagstéttir eru alla jafna með fjögurra til sex ára háskólanám að baki og þurfa starfsleyfi frá Embætti landlæknis til að mega starfa hér á landi. Flestar sinna þær störfum á opinberum vinnumarkaði og eru svokallaðar einkeypisstéttir sem þýðir að launasetning þeirra lýtur sjaldnast lögmálum samkeppninnar. Þar með er launasetning háskólamenntaðra á opinberum vinnumarkaði hvað lægst hjá heilbrigðisstéttum, þeim sem sinna menntun komandi kynslóða og fagstéttum í menningarstarfsemi. Meðaltal dagvinnulauna BHM fólks hjá ríkinu er um 760 þúsund krónur, en meðaltalið er dregið niður af þessum félögum heilbrigðisstétta. Þegar meðallaun ólíkra fagstétta eru skoðuð nánar sést að þau eru lægst þar sem konur eru í miklum meirihluta eða á bilinu 650 – 770 þúsund krónur. Þegar meðallaun annarra hópa háskólamenntaðra sérfræðinga eru könnuð, svo sem þeim sem starfa við fjármál og rekstur, lögfræði og stjórnsýslu má sjá meðallaun á bilinu 837 – 846 þúsund krónur. Virðismat starfa fer nefnilega enn eftir því hvers kyns meirihluti starfsfólks er og hvernig hefð er fyrir því að starfið sé launað. Haldbært heilbrigðiskerfi Á Heilbrigðisþingi síðastliðið haust kom fram að árið 2017 voru 5,3 vinnandi á hvern aldraðan einstakling. Ef fram heldur sem horfir verða þau aðeins 3,0 árið 2050. Það er því augljóst að velferðarkerfið hér á landi er engan veginn haldbært. Það þarf að fjárfesta í heilbrigðis- og félagsþjónustu sem snýst um að efla lýðheilsu, forvarnir og endurhæfingu þannig að fólk þurfi síður á þriðja stigs þjónustu að halda. Ásamt því blasir við að fjölga þarf fagmenntuðu heilbrigðisstarfsfólki til muna nú þegar. Þörf er á markvissum aðgerðum til að leiðrétta launasetningu og bæta starfsumhverfi heilbrigðisstétta hjá stofnunum ríkisins og víðar á opinberum vinnumarkaði. Þannig er hægt að laða fleira ungt fólk til menntunar og starfa í heilbrigðisgreinum. Hægt er að nefna aðgerðir stjórnvalda í menntamálum frá 2019 sem hafa gefið góða raun. Þá var farið í átaksverkefni um nýliðun í kennarastétt sem leiddi til verulegrar fjölgunar í hópi útskrifaðra kennara. Gera þarf úttekt á nýliðunar- og mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu svo unnt sé að byggja mannaflaspár á áreiðanlegum gögnum. Þetta snýst ekki eingöngu um skort á læknum, hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum til að sinna nauðsynlegri þjónustu á sjúkrahúsum og innan heilsugæslu. Viðvarandi mönnunar- og nýliðunarvandi hefur verið þekktur árum saman hjá flestum heilbrigðisstéttum. Vandinn leysist ekki að sjálfu sér. Aðgerða er þörf – Þetta reddast ekki! Höfundar eru formenn Félagsráðgjafafélags Íslands og Iðjuþjálfafélags Íslands í BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar