Enn syrtir í álinn hjá Everton Smári Jökull Jónsson skrifar 14. janúar 2023 16:55 Frank Lampard er í tómum vandræðum hjá Everton. Vísir/Getty Everton tapaði enn einum leiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag en liðið er án sigurs í síðustu sjö deildarleikjum. Nottingham Forest og Wolves unnu góða heimasigra.
Everton mætti liði Southampton á heimavelli í dag. Amadou Onana kom lærisveinum Frank Lampard í forystu á 39.mínútu og staðan í hálfleik var 1-0 Everton í vil. Í síðari hálfleik var það James Ward Prowse sem átti sviðið. Ward Prowse byrjaði á því að jafna metin strax í upphafi síðari hálfleiks eftir sendingu frá Che Adams og hann skoraði síðan sigurmark Southampton á 78.mínútu. Með sigrinum tókst Southampton að jafna Everton að stigum í töflunni, bæði lið eru með fimmtán stig í fallsæti. Það er verulega heitt undir Frank Lampard í stjórastólnum hjá Everton en liðið hefur ekki unnið sigur í síðustu sjö deildarleikjum en síðasti sigur liðsins kom í október þegar liðið vann 3-0 sigur á Crystal Palace. Brennan Johson fagnar öðru marki sínu í sigri Nottingham Forest í dag.Vísir/Getty Nottingham Forest er komið upp í þrettánda sæti úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur á Leicester á heimavelli. Brennan Johnson skoraði bæði mörkin í sigrinum en sigurinn er sá annar í röð hjá Forest Úlfarnir unnu mikilvægan 1-0 sigur á West Ham í dag. Daniel Podence skoraði eina mark leiksins í upphafi síðari hálfleiks en Wolves skilur West Ham eftir í fallsæti með sigrinum.
Enski boltinn Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Vestri - Qarabag | Fyrsti heimaleikurinn í 400 kílómetra fjarlægð frá Ísafirði Fótbolti Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Fótbolti Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira