Sagt var frá þessu óvænta bónorði í fréttum Stöðvar 2. Flugvélin var á leið frá Kangerlussuaq til Nuuk en meðal farþega var hin grænlenska Michala Hansen sem hugðist eyða jólunum í Nuuk með kærasta sínum, Íslendingnum Róbert Evensen, og vissi hún ekki betur en að hann myndi taka á móti henni í flugstöðinni.

Svo vill til að Róbert starfar sem flugstjóri hjá Air Greenland og ákvað hann að koma kærustunni á óvart. Hann skipti á vakt við samstarfsfélaga sinn og það var því Róbert sem flaug Dash 8-flugvélinni til Nuuk án þess að kærastan vissi.

Eftir að hafa stýrt vélinni að flugstöðinni og slökkt á hreyflunum birtist hann svo í farþegarýminu með jólaveinahúfu á höfði. Og takið eftir viðbrögðum konunnar til vinstri á myndbandinu frá Air Greenland þegar hún áttar sig á því að kærastinn Róbert er flugstjórinn um borð og er að tala í hátalarakerfið:

„Kæru gestir. Velkomnir til Nuuk. Ég er með mikilvæga tilkynningu. Við erum nefnilega með mjög sérstakan farþega með okkur. Það er Michala Hansen sem situr í sæti 2B.
Vandinn er sá hún er „bara“ kærastan mín, svo við verðum að gera eitthvað í því. Því vil ég gjarnan spyrja þig, Michala. Viltu giftast mér?“
„Já, já, það vil ég,“ heyrðist hún svara við fögnuð samferðamanna um borð.
Þess má geta að flugstjórinn rómantíski er fæddur og uppalinn á Blönduósi. Róbert flaug um tíma hjá Wow air, en hefur undanfarin tvö ár starfað hjá Air Greenland en kærustuparið er búsett í Kaupmannahöfn.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: