Lífið

Uppistand um kjaramál merki um hærri aldur

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Ari Eldjárn mun gera upp árið í uppistandi sem hann sýnir til 7. janúar.
Ari Eldjárn mun gera upp árið í uppistandi sem hann sýnir til 7. janúar. vísir/egill

Sjötta árið í röð gerir uppistandarinn Ari Eldjárn upp árið í sýningu sinni áramótaskop í Háskólabíói. Á næstu tveimur vikunum sýnir hann tólf sinnum. Burðarstykki í sýningunni fjallar um kjaramál sem Ari segir merki um að hann sé að eldast.

Lillý Valgerður ræddi við Ara Eldjárn fyrir sýningu í kvöldfréttum Stöðvar 2:

Sýningin, sem á að vera í janúar, hefur fallið niður á þeim tíma síðustu tvö ár og verið haldin í apríl. „Þessi sýning hefur þá eiginlega bara verið í undirbúningi í hálft ár,“ segir Ari Eldjárn.

Ýmislegt tilfallandi sem hefur átt sér stað síðustu mánuði kemur til sögu í sýningunni. 

„Það var margt fyndið á árinu sem varð úrelt þegar allar takmarkanir voru felldar niður. Þetta er bara tilfallandi dót og dót sem er að gerast núna sem ég er að reyna að koma inn í þetta eins og þessi snjóþyngsli og þessi bömmer með ferðamennina. Þetta er rosa mikið verk í vinnslu.“

Ari vill þó ekki segja frá því hvað hafi slegið í gegn í fyrstu sýningu en það kom honum á óvart hvað sló í gegn. Víst er að kjaramál koma við sögu í uppistandinu. 

„Það sýnir kannski bara hvað maður er farinn að eldast að burðarstykki í sýningunni sé um kjaramál, formaður VR var hér einmitt í gær sem er áminning um hvað þetta er lítið land. En þetta er bara svona bland í poka núna. Ég er bara ótrúlega glaður að það sé hægt að sýna, engin grímuskylda, engir pinnar í nef, má hafa hlé og selja vín,“ segir Ari Eldjárn sem sýnir til 7. janúar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.