Valsmenn án lykilmanna á morgun Valur Páll Eiríksson skrifar 12. desember 2022 14:30 Magnús Óli Magnússon verður ekki með á morgun. Vísir/Vilhelm Valsmenn verða án sterkra pósta er þeir mæta Ystad frá Svíþjóð í Evrópudeild karla í handbolta að Hlíðarenda annað kvöld. Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari liðsins, greindi frá þessu á blaðamannafundi í dag.
Valur mun leika sinn sjötta leik í keppninni á morgun er Ystad heimsækir Hlíðarenda. Ystad byrjaði illa í keppninni, með tveimur tapleikjum, en hefur síðan unnið þrjá leiki í röð. Síðustu tveir leikir voru sigrar gegn Flensburg í Svíþjóð og á PAUC í Frakklandi, en þau voru fyrirfram talin sterkustu liðin í riðlinum. Á blaðamannafundi í aðdraganda leiksins í dag greindi Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, frá því að þeir Róbert Aron Hostert og Magnús Óli Magnússon verði báðir frá í leiknum á morgun. Sömu sögu er að segja af Berg Elí Rúnarssyni. Róbert Aron og Magnús Óli eru báðir rétthentir menn í ytri línu sóknarleiks Vals og missir liðið því tvo sterka pósta, í sókn og vörn, í sömu stöðu. Báðir hafa glímt við meiðsli um hríð en spilað í gegnum þau, en báðir óleikfærir á morgun. Bergur Elí er hægri hornamaður en hann fékk vott af heilahristingi þegar hann fékk höfuðhögg í leik Vals við Aftureldingu í Olís-deildinni um helgina. Valur er með fimm stig eftir fimm leiki í keppninni og er sæti neðar en Ystad sem er með sex stig. Leikur liðanna hefst klukkan 19:45 á morgun og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsending hefst klukkan 19:15.
Evrópudeild karla í handbolta Valur Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira