Leita að jólagjöf ársins Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 16. nóvember 2022 16:06 Getty RSV (Rannsóknasetur Verslunarinnar) leitar eftir tillögum að jólagjöf ársins. Jogginggalli var valin gjöf ársins í fyrra. Þá verður fróðlegt að sjá hvort neytendur og verslanaeigendur séu sammála viðskiptavinum Elko sem völdu loftsteikingapott sem vinsælustu gjöfina í ár.
Miðað er við að jólagjöf ársins sé vara sem selst vel, sé vinsæl meðal neytenda og falli vel að tíðarandanum. Rannsóknarsetur Verslunarinnar aflar nú upplýsinga frá neytendum og verslunum um vinsælar sérvörur í aðdraganda jóla. Óskað er eftir að verslanaeigendur sendi upplýsingar um þrjár mest seldu vörur í verslun þeirra á tímabilinu 1. október til 20. nóvember. Jólagjöf ársins í fyrra var jogginggalliGetty Valdir neytendafrömuðir sem skipa rýnihóp RSV koma svo saman og velja jólagjöf ársins út frá gefnum upplýsingum og forsendum. Elko þegar búið að velja jólagjöf ársins Raftækjaverslunin Elko er þegar búin að velja jólagjöf ársins. Það kemur kannski ekki mörgum á óvart að loftsteikingarpottur (e.air fryer) er jólagjöf ársins samkvæmt könnun meðal viðskiptavina verslunarinnar, en tækið hefur notið mikilla vinsælda undanfarna mánuði. Í öðru sæti í könnun verslunarinnar var snjallsími og PS5 leikjatölva í því þriðja. Air Fryer loftsteikingarpottur er jólagjöf ársins samkvæmt ElkoElko Jólagjafir ársins síðustu ár samkvæmt RSV eru: 2006 Ávaxta- og grænmetispressa 2007 GPS staðsetningatæki 2008 Íslensk hönnun 2009 Jákvæð upplifun 2010 Íslensk lopapeysa 2011 Spjaldtölva 2012 Íslensk tónlist 2013 Lífstílsbók 2014 Nytjalist 2015 Þráðlausir hátalarar eða heyrnartól
Jól Neytendur Verslun Tengdar fréttir Jogginggallinn jólagjöf ársins Jogginggallinn er jólagjöf ársins 2021 að mati Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV). Miðað var við að gjöfin væri vara sem selst vel, væri vinsæl meðal neytenda og falli vel að tíðarandanum. 15. desember 2021 15:31 Mest lesið Svona gerir þú piparkökuhúsið úr Blindum bakstri Jól Jóladagatal Vísis: Reykjavíkurdætur negla All Out of Luck Jól Fær stærstu gjöf lífsins Jól Ódýrt og einfalt jólaföndur sem allir geta gert Jól Óhefðbundin jól í Chile: „Vorum þvílíkt klár í jólin en þau ætluðu aldrei að byrja“ Jól Jólamolar: Losnuðu úr sóttkví korter í jól og fjölskyldan brunaði af stað Jól Sagan á bak við vinsælasta jólalag allra tíma Jól Aldrei verið einmana á jólanótt Jól Jólamolar: Gat ekki borðað hamborgarhrygg í mörg ár eftir að hann borðaði yfir sig Jól Jólamolar: Er ekki íhaldssöm þegar kemur að jólunum Jól
Jogginggallinn jólagjöf ársins Jogginggallinn er jólagjöf ársins 2021 að mati Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV). Miðað var við að gjöfin væri vara sem selst vel, væri vinsæl meðal neytenda og falli vel að tíðarandanum. 15. desember 2021 15:31