Fyrsti leikur Ásgeirs með Hauka í kvöld: Ætla ekkert að vera að deyja úr stressi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. nóvember 2022 10:31 Ásgeir Örn Hallgrímsson með Aroni Kristjánssyni og Þorkatli Magnússyni. Haukar Ásgeir Örn Hallgrímsson stýrir Haukum í fyrsta skiptið í kvöld þegar liðið mætir Íslandsmeisturum Val á Ásvöllum í Olís deild karla í handbolta. Það er óhætt að segja að það er líklega ekki hægt að byrja á erfiðari mótherja.
Ásgeir Örn kveður nú Seinni bylgjuna og Handkastið en hann mætti í einn lokaþátt og ræddi breytingarnar hjá sér í samtali við Stefán Árna Pálsson. „Þetta er búin að vera rosaleg vika í íslenskum handknattleik. Rúnar Sigtryggsson hætti með Hauka og tók við Leipzig í þýsku Bundesligunni og í kjölfarið var Ásgeir Örn Hallgrímsson ráðinn þjálfari liðsins. Ásgeir þú ert að taka við uppeldisfélaginu. Ertu spenntur,“ spurði Stefán Árni Pálsson í upphafi þáttarins. „Já, ég er mjög spenntur og fullur tilhlökkunar. Ég er bara búinn með tvær æfingar og þetta gengur allt enn þá,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson en viðtalið var tekið fyrir helgi. Ásgeir hefur væntanlega reynt að nýta helgina vel. Leikur Hauka og Vals verður sýndur beint á Stöð 2 Sport í kvöld og hefst útsendingin klukkan 19.15. Félag sem sættir sig ekki við að vera í tíunda sæti „Þetta verður erfitt og það er mjög krefjandi verkefni fram undan. Það er verk að vinna því Haukar eru félag sem sættir sig ekki við að vera í tíunda sæti. Við ætlum alltaf að vera við toppinn og við ætlum alltaf að vera þarna uppi en við erum þar ekki núna,“ sagði Ásgeir Örn. Ásgeir Örn Hallgrímssonvísir/bára „Þá þurfa menn að fara að vinna í sínum málum því liðið er gott. Við erum með frábæra leikmenn og nú þurfum við að ná út úr þeim sem við vitum að þeir geta,“ sagði Ásgeir. Það gerðist mjög fljótt að Ásgeir tók við liðinu. Var í rauninni lygilegt „Já mjög. Þetta var í rauninni vera lygilegt. Ég heyri fyrst af þessum í hádeginu á mánudaginn þegar ég er heima með veika dóttur mína. Ég fæ þá símtal frá Þorgeiri (Haraldssyni, formanni) sem er staddur á Flórída í fríi. Hann segir mér þessa fréttir og spyr mig hvort ég sé tilbúinn í þetta,“ sagði Ásgeir. „Við höfum lauslega rétt svona hluti áður og mér fannst þetta spennandi. Eins og eðlilegt er þá þurfti ég að ræða þetta við fjölskylduna og vinnuveitandann. Ég gat náttúrulega ekki gefið þeim svar strax. Hann gaf mér liggur við fram á kvöld og ég sagðist ætla að gefa honum svar daginn eftir sem ég og gerði. Þetta er svona rúmur sólarhringur sem maður fékk til að hugsa þetta og venjast þessu,“ sagði Ásgeir. Ásgeir Örn Hallgrímsson í leik með íslenska landsliðinu.Mynd/AP „Þetta þurfti að gerast mjög hratt því Rúnar fær þetta flotta tækifæri til að taka við Leipzig í Bundesligunni. Haukarnir lögðu áherslu á það að þegar það yrði nokkurn veginn tilkynnt við leikmenn að hann væri að fara þá væri kominn einhvern í staðinn. Þannig að þeir fengju ekki þessa tilfinningu að þær væru þjálfaralausir. Ég er því kominn með þetta í fangið,“ sagði Ásgeir. Var búinn að fá hundleið á þessu „Mér fannst þetta mjög erfitt og ég þurfti töluvert að hugsa þetta. Eftir að ég hætti að spila þá hugsaði ég: Núna er þetta bara búið því ég er búinn að fá hundleið á þessu, það er ekkert gaman að mæta á æfingar og ég er dauðfeginn að geta gert eitthvað annað. Svo líður bara tími og þá er handboltinn bara einhver baktería sem er rosalega erfitt að losna við,“ sagði Ásgeir. „Svo byrjaði ég að vinna með þér og Seinni bylgjunni og þá var maður mikið inn í þessu, þurfti að horfa mikið á leiki, spá og spekúlera. Þá óx þetta með mér og svo var það í haust sem ég áttaði mig á því að þetta væri eitthvað sem ég ætlaði að setja á planið fyrir næstu ári. Ég hélt að þetta kæmi með Haukana fyrr en eftir þrjú til fjögur ár, að það myndi mögulega losna,“ sagði Ásgeir. „Ég hugsaði tækifærið bara þannig og hugsa enn þá. Mig langar bara að þjálfa eitt lið á Íslandi. Ég ætla bara að þjálfa Hauka. Ef tækifærið er bara núna þá er það bara núna, þá þarf ég að aðlaga mig að því og tækla það,“ sagði Ásgeir. Veit hvaða leið hann vill fara Ásgeir segist vera með sýn á það hvernig liðið hans á að spila en viðurkennir að hann sé ekki handviss um hvernig hann komi þeim þangað. „Ég veit hvaða leið ég ætla að fara en það verður að koma í ljós hvort hún virkar eða ekki,“ sagði Ásgeir. Hann vill þétta vörnina og að menn láti finna meira fyrir sér. Hann vill líka spila miklu hraðar. Haukarnir eru í vandræðum, var sparkað út úr Evrópukeppninni og það er mjög krefjandi verkefni að ná að snúa við gengið liðsins. Sigurjón „Það er ekkert búið og það er bara nóvember. Það verður enginn meistari í nóvember. Við getum enn þá náð árangri á tímabilinu og við ætlum að ná árangri á tímabilinu. Þá þurfa ég og allir að koma okkur á hvaða línu við ætlum að taka. Ég þekki enga aðra leið heldur en að fara vinna í okkur sjálfum. Þetta krefst fórna og að við leggjum mikið á okkur,“ sagði Ásgeir. Hef enga reynslu og hef áhyggjur af því „Ég hef enga reynslu og ég hef áhyggjur af því. Það er augljós veikur punktur en ég hef samt sjálfstraust. Ég hef spilað þennan leik í tuttugu og eitthvað ár og pælt og spekúlerað. Þangað til annað kemur í ljós þá hef ég trú á því að ég sé með þetta og það þýðir ekkert annað fyrir mig,“ sagði Ásgeir. „Ég ætla ekkert að vera að deyja úr einhverju stressi þótt að þetta sé allt nýtt. Þetta er nýtt en líka eitthvað sem ég þekki mjög vel,“ sagði Ásgeir. Það má finna allt viðtalið hér fyrir neðan.
Olís-deild karla Haukar Mest lesið Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti Besta sætið: Þarf að reka Óla? Sport Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti Mainoo og Maguire snúa aftur en enginn Alexander-Arnold Fótbolti Fleiri fréttir Þórir ráðleggur þjálfurum Noregs líka í þrjátíu prósent starfi Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram Sjá meira