Ásgeir Örn líklegastur til að taka við Haukum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 8. nóvember 2022 19:30 Ásgeir Örn Hallgrímsson í leik með Haukum. vísir/vilhelm Rúnar Sigtryggsson sem þjálfað hefur Hauka í Olís-deild karla í handbolta er hættur og hefur samið við Leipzig sem leikur í þýsku úrvalsdeildinni. Ásgeir Örn Hallgrímsson þykir líklegasti arftaki Rúnars hjá Hafnarfjarðarliðinu.
Rúnar semur við Leipzig út þessa leiktíð, en hann sagði í samtali við Vísi og Stöð 2 fyrr í dag að þetta hafi verið tækifæri sem ekki væri hægt að hafna. Leipzig er fjórða liðið sem Rúnar þjálfar í Þýskalandi, en áður hefur hann þjálfað ThSV Eisenach, EHV Aue og HBW Balingen-Weilstetten. Leipzig situr í 16. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og er í harðri fallbaráttu. Liðið hafnaði í níunda sæti á seinustu leiktíð, en með liðinu leikur landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson. Haukar standa því eftir þjálfaralausir. Sérfræðingur Seinni bylgjunnar og landsliðsmaðurinn fyrrverandi, Ásgeir Örn Hallgrímsson, ku vera efstur á óskalista Hauka, sem væntanlega taka ákvörðun um framhaldið á morgun. Ásgeir Örn hóf handboltaferil sinn hjá Haukum og lék með liðinu frá 2000 til 2005. Eftir langan og farsælan atvinnumannaferil snéri hann svo aftur til liðsins árið 2018 og lék með Hafnarfjarðarliðinu þar til skórnir fóru á hilluna tveimur árum síðar. Klippa: Ásgeir Örn líklegastur til að taka við Haukum
Olís-deild karla Haukar Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ Fótbolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Íslenski boltinn „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira