Lífið

Stór­meistarinn gerir stólpa­grín að ís­lenska bikarnum

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Stórmeistaranum virðist þykja útlitið á íslenska bikarnum sérkennilegt.
Stórmeistaranum virðist þykja útlitið á íslenska bikarnum sérkennilegt. Skjáskot/GMHIKARU

Stórmeistarinn Hikaru Nakamura frá Bandaríkjunum, sem vann heimsmeistaramótið í Fischer-skák hér á landi fyrir viku síðan, gerir stólpagrín að íslenska bikarnum. 

Hann sýndi áhorfendum bikarinn í netstreymi í vikunni.

„Já, þið sjáið það. Hérna er bikarinn,“ segir Nakamura og skellir upp úr. Áhorfandi líkir bikarnum við djúpsteiktan kjúkling og Nakamura virðist ekki ósammála samlíkingunni.

„Svona er þetta; í íslenskum stíl,“ segir stórmeistarinn og hlær.

Umræða um bikarinn hefst á mínútu 18:33 í myndbandinu hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.