Þær vinkonur í Two Non Blonds, þær Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir teiknari, sem gjarnan er kennd við hljómsveitina FM Belfast hvar hún syngur og Sandra Barilli sem heldur meðal annars úti vinsælu hlaðvarpi um kvikmyndir, standa fyrir karaókíkvöldum, tilfallandi. Sem hafa vakið mikla lukku. Og þannig var það í gær.
Allt tryllt þegar Magnús Carlsen steig á sviðið
Lóa segir að þegar hafi myndast mikil og góð stemmning. Hún segist ekki vera vel að sér í skákinni en þarna hafi verið staddur hópur „dúdda“ og það fór ekki hjá því að einkum var sótt að einum þeirra að taka lagið. Sem svo varð.
„Þetta var ógeðslega fyndið. Við hefðum ekki fattað að þetta væru einhverjar týpur nema vegna myndavélanna sem flugu á loft þegar þeir hófu upp raust sína,“ segir Lóa. Og bætir því við að Magnús Carlsen hafi sungið lagið Boten Anna.
Lesandi Vísis sendi ritstjórn myndband af frammistöðu Carlsen og er ljóst að flutningi hans var afar vel tekið.
Lóa sjálf er þekkt rokkstjarna og því ekki úr vegi að spyrja hana hvernig til hafi tekist hjá heimsmeistaranum en hún treystir sér ekki til að gefa honum einkunn.
„Erfitt að meta það þegar svona margir syngja í einu,“ segir Lóa en það myndaðist mikil stemmning á Röntgen þegar Magnús steig á svið. Og húsið tók undir meistaranum.
„Ég horfði á þetta aftan frá af því að við erum að stýra karaókíinu; á skákheiminn skaka sér.“

Hjörvar Steinn skellti sér í Ecuador
Meðal þeirra sem voru þarna staddir voru að sjálfsögðu íslenski stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson sem lét sig ekki muna um að henda sér í stórsmellinn og danslagið Ecuador. „Já, hann Hjörvar, íslenski skákdrengurinn.“
Veitinga- og skemmtistaðurinn Röntgen stendur við Hverfisgötu, en heimsmeistaramótið í Fischer-skák fer nú fram á Hótel Natura. Lóa segir að sér hafi ekki einu sinni verið kunnugt um að skákmót væri í gangi. Og söngurinn hefur virkað vel fyrir Hjörvar því hann náði sínum fyrsta sigri í dag, á þriðja keppnisdegi, þegar hann lagði ríkjandi heimsmeistara í Fischer-skákinni, Wesley So.