Ómar og Gísli fóru á kostum í jafntefli gegn Bjarka og félögum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. október 2022 18:26 Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson halda áfram að gera það gott með Magdeburg. Ronny Hartmann/picture alliance via Getty Images Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoruðu samtals 15 mörk er Magdeburg gerði jafntefli gegn Bjarka Má Elíssyni og félögum hans í Telekom Veszprem í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld, 35-35. Þá var Haukur Þrastarson í liði Kielce sem vann þriggja marka sigur gegn Celje Lasko, 30-33.
Leikur Veszprem og Magdeburg var jafn og spennandi frá upphafi til enda og liðin skiptust á að hafa forystuna. Heimamenn í Veszprem náðu þriggja marka forskoti um miðjan fyrri hálfleikinn, áður en Magdeburg snéri taflinu við og náði þriggja marka forskoti í stöðunni 12-15, en heimamenn jöfnuðu metin fyrir hálfleik og staðan var 16-16 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Svipaða sögu er að segja af síðari hálfleik þar sem liðin skiptust á að skora, en heimamenn náðu þó aftur upp þriggja marka forskoti í stöðunni 28-25. Gestirnir í Magdeburg voru þó ekki lengi að jafna metin á ný og við tóku æsispennandi lokamínútur. Það voru að lokum heimamenn í Veszprem sem fengu tækifæri til að stela sigrinum í seinustu sókn leiksins, en inn vildi boltinn ekki og niðurstaðan því jafntefli, 35-35. Bjarki Már Elísson skoraði eitt mark fyrir Veszprem í kvöld, en þeir Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson fóru á kostum í liði Magdeburg og skoruðu samtals 15 mörk. Ómar skoraði átta og Gísli sjö. Bjarki og félagar hans í Veszprem sitja nú á toppi A-riðils með níu stig eftir fimm leiki, tveimur stigum meira en Magdeburg sem situr í þriðja sæti. Þá skoraði Haukur Þrastarson tvö mörk fyrir pólska liðið Kielce sem vann góðan þriggja marka útisigur gegn Celje Lasko á sama tíma, 30-33. Kielce situr nú í öðru sæti B-riðils með átta stig eftir fimm leiki, en lið Celje Lasko situr í sjöunda sæti með tvö stig.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira