Topplið Keflavíkur og Hauka með góða sigra Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. október 2022 21:31 Anna Ingunn Svansdóttir var frábærí kvöld. Vísir/Bára Dröfn Keflavík og Haukar, toppliðin í Subway deild kvenna í körfubolta unnu góða útisigra í kvöld. Haukar gerðu góða ferð í Kópavog og unnu Breiðablik 74-54. Keflavík fór í Grafarvog og lagði Fjölni 91-72.
Haukar voru ekki í miklum vandræðum í Kópavogi en sóknarleikur Breiðabliks var hreinlega ekki til staðar í fyrsta leikhluta. Blikar skoruðu aðeins tíu stig og voru 17 stigum undir þegar honum loks lauk. Munurinn var 16 stig er flautað var til fyrri hálfleiks en á endanum unnu Haukar 20 stiga sigur, lokatölur 54-74. Sanja Orozovic var stigahæst í liði Blika með 20 stig á meðan Eva Margrét Kristjánsdóttir skoraði 16 stig í liði Hauka og tók 14 fráköst. Sama var upp á teningnum í Grafarvogi en sóknarleikur Fjölnis var þó töluvert betri en hjá Blikum. Hins vegar var sóknarleikur gestanna upp á tíu og skoruðu þær svo gott sem að vild. Fór það svo að Keflavík vann öruggan 19 stiga sigur, lokatölur 72-91. Taylor Dominique Jones var stigahæst í liði Fjölnis með 17 stig ásamt því að taka 15 fráköst. Anna Ingunn Svansdóttir var stigahæst í liði gestanna með 23 stig á meðan Daniela Wallen Morillo skoraði 18 stig og tók 15 fráköst. Eftir leiki kvöldsins er Keflavík með fullt hús stiga á toppi deildarinnar að loknum sjö umferðum. Haukar eru í öðru sæti með sex sigra og eitt tap. Breiðablik og Fjölnir hafa bæði unnið tvo leiki og tapað fimm til þessa.
Körfubolti Subway-deild kvenna Keflavík ÍF Haukar Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira