Lífið

Stjörnubræður í uppáhaldi hjá íslenskum börnum metnir á fjörutíu milljarða króna

Snorri Másson skrifar

Verkahringur Vladislav Vashketov og Nikita Vashketov er ekki ýkja flókinn. Opna umbúðir að leikföngum og leika sér svo með þau á heimili sínu. Þetta gera þeir fyrir framan myndavélina og afurðin eru myndbönd á tíundu vinsælustu YouTube-rás heims, Vlad and Niki. 

Íslensk börn eru eins og önnur börn heimsins aðdáendur þessara bræðra og horfa mörg á hvert myndband sem kemur út. Í innslaginu hér að ofan úr Íslandi í dag var fjallað um áhrif bræðranna á málfærni ungu kynslóðarinnar og sýnd brot úr myndböndunum.

Eldri bróðirinn, til vinstri, Vlad, er fæddur 2013 og er nú níu ára. Niki er fæddur 2015 og er orðinn sjö ára. The older brother is Vlad, who was born on February 26, 2013. This makes him nine years old at the time of writing. Niki was born on June 4, 2015, meaning he is six.Vlad&Niki

Eins fábrotin og framleiðslan að baki efnisins kann að virðast; helstu brellurnar eru allar gerðar í eftirvinnslu; þá er umfang þessarar starfsemi ekkert grín. Vlad og Niki eru metnir á 280 milljónir Bandaríkjadala. Þeir eru sagðir græða um 45 milljónir króna á þátt.

Foreldrar drengjanna stýra framleiðslu efnisins. Fjölskyldan er búsett í Miami en upphaflega eru foreldrarnir frá Rússlandi. Aðeins fjögur ár eru frá því að YouTube-stöðin var stofnuð og þegar eru áskrifendur á YouTube orðnir 212 milljónir talsins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.