Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Seint og syfjaður! Ég vakna um klukkan sjö en þá er eiginkonan oft farin á fætur og komin í yoga eða aðra hreyfingu sem ég treysti mér ekki í fyrr en seinni part dags. Hún tekur líka fjölskylduhundinn Kríu í morgungönguna, en ég sé um kvöldgönguna.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Mér finnst mjög gott nota nokkrar mínútur til að velta fyrir mér deginum og hvaða áhrif ég vil og get haft á umhverfi mitt. Þannig stilli ég mig aðeins af fyrir það sem er framundan.
Ég bý síðan um rúmið; þá er ég búinn að klára eitt uppbyggilegt verkefni með sæmilegum árangri! Fer síðan fram og kveiki á dásamlegu ítölsku kaffivélinni þar sem ég get búið til alvöru expresso og flóað haframjólkina.
Ég athuga hvort drengirnir eru vaknaðir; banka á herbergishurðarnar ef ég fæ ekkert svar. Við hjónin ræðum stundum hvort ekki væri réttara að þeir tækju ábyrgð á sjálfum sér og vöknuðu alltaf af eigin rammleik, en ég minnist þess að hvorki ég né bróðir minn hefðum klárað menntaskóla ef pabbi hefði ekki vakið okkur!“
Ef þú værir rokkari eða fræg poppstjarna, hver værir þú þá?
„Ef ég mætti velja í einhverjum brjálæðislegum draumi þá væri ég líklega rokkari frekar en poppstjarna.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá kynntist konunni dansandi við „Killing in the Name“ með Rage Against the Machine.
Bono í U2 sagði líka að á meðan popptónlist segir þér að allt sé eins og það eigi að vera, þá segir rokktónlist þér að það er ýmislegt að í heiminum en að þú hafir í valdi þínu að breytt honum til hins betra.
Ég vil gjarnan vera í því liði sem viðurkennir vandamálin og reynir að vinna úr þeim og bæta heiminn.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Mér finnst gott að hafa marga bolta á lofti og er líður best ef ég hef jafnvægi á milli áríðandi mála sem þarf að sinna strax og mikilvægra mála sem vinna í haginn fyrir framtíðina.
Af áríðandi mála standa upp úr ellefu sáttamál sem eru hjá ríkissáttasemjara og af mikilvægum málum er efst á blaði gagnagrunnur sem við erum að smíða með yfirliti yfir alla gildandi kjarasamninga. Með gagnagrunninum verður ekki aðeins hægt að nálgast á einum stað á vefnum alla gildandi kjarasamninga heldur einnig margskonar tölfræði og upplýsingar til dæmis um hvenær samningar losna, hversu margir samningar nást áður en fyrri samningur rennur út og svo framvegis. Ég er sannfærður um að þetta nýtist bæði launafólki og launagreiðendum vel og auki skilning á umgjörð kjarasamningagerðarinnar.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
Ég leitast við að hafa jafnvægi á milli ólíkra verkefna og mér finnst ég ná mestum árangri ef ég er ekki mjög lengi í hverju verkefni fyrir sig.
Ég reyni að takast á við flóknari úrlausnarefni á morgnana og hafa frekar einfaldari verkefni og fundi eftir hádegi, ef því er við komið.
Í starfi ríkissáttasemjara er mikilvægt, og gríðarlega skemmtilegt, að hafa góðan tíma til að kynnast fólki, sjónarmiðum og hagsmunum og ég hef alltaf tíma til að ræða við fólk.
Það er í eðli starfsins að ég þarf að vera sveigjanlegur og ég veit oft ekki hversu langur vinnudagurinn verður eða hvers verkefnin krefjast. Vinna og einkalíf hafa tilhneigingu til að blandast í eina heild hjá mér og ég dett inn í verkefni á öllum tímum sólahrings. Ég reyni hins vegar þegar ég er með fjölskyldu og vinum að hafa þá allan hugann við það og setja símann, tölvuna og pælingar um vinnu á hilluna á meðan.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Seint! Ég stefni alltaf á að vera sofnaður nokkuð fyrir miðnætti, en það er meginregla sem oft er brotin. Ég get dottið í að vinna eftir að yngsti drengurinn sofnar, les alltaf fyrir svefninn og get gleymt mér algerlega í áhugaverðri bók.“